Í Værdens Gang er að finna grein um notkun íþróttamanna á frammistöðubætandi lyfjum og er þar meðal annars rætt við aflraunamanninn Hafþór Júlíus Björnsson.
Mbl.is greinir frá efni fréttarinnar og hefur eftir VG að Hafþór hafi notast við lyf sem bönnuð eru í alþjóðlegri keppni frá því hann var 19 ára gamall. Viðtalið fór fram á hinum svokölluðu Steraleikum í Las Vegas, Bandaríkjunum, en þar gilda sérreglur um lyfjanotkun.
„Ég trúi því að þessi keppni gæti orðið stærri en Ólympíuleikarnir. Sjáið bara hvað hún hefur fengið mikla athygli á stuttum tíma,“ segir Hafþór á blaðamannafundi um keppnina.
Hann var síðan spurður hvort ekki yrði erfitt að hætta notkun lyfjanna í framtíðinni. Hann segir svo ekki vera enda hafi honum tekist að hætta notkun þeirra þegar á þurfti að halda:
„Ég á tvö börn og hef hætt að taka þau tvisvar nú þegar. Þegar þú setur auka karlhormón í líkamann hætta náttúrulegu hormónin að virka og sæðisfrumum fækkar. Þá er erfitt að gera eiginkonu þína ólétta en mér tókst það því ég tók mér hlé.“
Ábyrgðarhluti að kynna þetta
Stefán Pálsson sagnfræðingur deilir frétt mbl.is um málið á Facebook-síðu sinni og þykir honum umfjöllunin ógeðfelld:
„Það er eitthvað verulega óþægilegt við að lesa þetta viðtal og nánast ábyrgðarhluti að kynna og auglýsa svona atferli.“