Stefán Einar hellti sér yfir Dag eftir gagnrýni hans á Morgunblaðið - „Hvernig dettur þér í hug að ganga svona fram?“ - DV

Stefán Einar hellti sér yfir Dag eftir gagnrýni hans á Morgunblaðið - „Hvernig dettur þér í hug að ganga svona fram?“ - DV

Stefán Einar hellti sér yfir Dag eftir gagnrýni hans á Morgunblaðið - „Hvernig dettur þér í hug að ganga svona fram?“ - DV

Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og þáttastjórnandi hjá Morgunblaðinu reiddist Degi B. Eggertssyni þingmanni Samfylkingarinnar mjög eftir gagnrýni þess síðarnefnda á skort á umfjöllun Morgunblaðsins um skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um eignarhald stærstu útgerðarfyrirtækja landsins á fyrirtækjum í sjávarútvegi og ótengdum greinum. Vill Stefán Einar meina að Dagur hafi vegið ómaklega að vinnustað hans og dregur einnig inn í það minningarorð þingmannsins um Davíð Oddsson, fyrrum forsætisráðherra og ristjóra Morgunblaðsins.

Niðurstaða skýrslunnar er að 20 kvótahæstu útgerðir landsins hafi í árslok átt eignir í öðrum fyrirtækjum að andvirði 400 milljarða króna, hvort sem sé í öðrum útgerðum eða óskyldum rekstri. Þar af séu 230 milljarðar í öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum. Fram hefur komið að töluverðar eignir voru undanskildar í skýrslunni vegna skilgreiningar Hagfræðistofnunar á hvað teljist vera tengdir aðilar.

Við leit finnst ekki önnur umfjöllun á fréttavef Morgunblaðsins um skýrsluna en viðtal við Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Athygli vekur að í viðtalinu er tengill á frétt um verðmæti útflutnings sjávarafurða í febrúar.

Heiðrún segir í viðtalinu að skýrslan sýni fram á óverulega fjárfestingu sjávarútvegsfyrirtækja í ótengdum rekstri. Arðsemi í sjávarútvegi sé stundum óviðunandi og það sé óskiljanlegt ef hluthafar í sjávarútvegsfyrirtækjum eigi ekki að nýta þann arð sem þeir þó fái til „frekari verðmætasköpunar í íslensku atvinnulífi.“

Ekki er að sjá að blaðamaðurinn sem tók viðtalið hafi spurt Heiðrún hvað henni finnist um aukna samþjöppun eignarhalds í íslensku atvinnulífi með því að sá hluti þess sem sé í eigu fámenns hóps, eigenda fyrirtækjanna sem mynda uppistöðuna í þeim samtökum sem hún starfar fyrir, fari vaxandi.

Áróður

Í hinum nafnlausa skoðanapistli Staksteinum, sem birtist daglega í Morgunblaðinu, er í dag hins vegar skrifað:

„Samfylkingin og Ríkisútvarpið, sem gjarnan leggjast á sömu árar, hafa nú ákveðið, enn eina ferðina, að gera atlögu að undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Nú á að gera það tortryggilegt að eignamyndun hafi orðið í sjávarútvegi og að fyrirtæki eða fjárfestar í sjávarútvegi hafi fjárfest.“

Segir enn fremur að það teljist ekki mikið, sem komi fram í skýrslunni, að sjávarútvegsfyrirtækin eigi 129 milljarða eignir í öðrum atvinnugreinum og ekki er minnst á að í skýrsluna vantar eignir vegna skilgreininga á hvað teljist tengdir aðilar. Segir í Staksteinum að þessi tala sé nýtt í áróðursskyni og þess getið að þetta sé ekki stór hluti af eigin fé viðskiptahagkerfisins sem, án fjármálageirans, í árslok 2024 hafi, samkvæmt tölum Hagstofunnar, verið 6.350 milljarðar króna.

Ekki finnst í fljótu bragði frétt á vef blaðsins þar sem þetta kemur fram svo ekki er hægt að fullyrða að engin slík frétt hafi verið skrifuð og mögulegt er að hún hafi þá aðeins birst í prentútgáfu blaðsins. Hafi frétt með þessum upplýsingum ekki verið skrifuð en þess í stað skrifað um þær í skoðanapistli þá vekur það óneitanlega athygli og spurningar um hvers vegna sú leið hafi verið farin.

Dagur og Stefán

Dagur B. Eggertsson skrifar á Facebook-síðu sína:

„Mogginn bregst ekki eigendum sínum og fjallar ekki einu orði um skýrsluna þar sem meðal annars kemur fram að sjávarútvegurinn eigi Moggann. Segir sína sögu.“

Stefán Einar svarar að bragði í athugasemd:

„Haltu áfram að reyna að draga úr trúverðugleika eina frjálsa fjölmiðilsins sem eftir er í landinu. Það er jafn smekklegt og þegar þú ákvaðst að nýta miðopnu Morgunblaðsins til að vega að minningu Davíðs Oddssonar um sólarhring eftir að tilkynnt var um andlát hans. Hvernig dettur þér í hug að ganga svona fram?“

Dagur lét þessu ekki ósvarað:

„Sæll minn kæri, ekki ætla ég nú að metast við þig um hvor okkar grefur meira undir Mogga. En að blaðið þegi um eignarhald stærstu sjávarútvegsfyrirtækjanna í öðrum og óskyldum rekstri. Ja, ég segi ekki meir. En það er lúalegt að halda því fram að minningarorð mín um Davíð Oddsson hafi vegið að minningu hans. Öðru nær.“

Lætur Dagur fylgja með í svarinu umrædd minningaroð um Davíð en í þeim hrósar Dagur Davíð á margvíslegan hátt en gagnrýnir stefnu Sjálfstæðisflokksins í dag og segir hann hafa ekki fylgt góðum fordæmum Davíðs. Segir Dagur að Davíð hafi getað verið ósvífinn og hafi ásamt Þorsteini Pálssyni verið búinn að semja fyrir alþingiskosningar 1991 um stjórnarsamtarf við Alþýðflokkinn. Þeirri fullyrðingu hefur hins vegar verið andmælt af bæði Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, einum nánasta vini og bandamanni Davíðs, og Jóni Baldvini Hannibalssyni þáverandi formanni Alþýðuflokksins sem segir að um þetta stjórnarsamtarf hafi ekki verið samið fyrr en eftir kosningar.

#einar #hellti #stefán #sér #yfir


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/5/26/stefan-einar-hellti-ser-yfir-dag-eftir-gagnryni-hans-morgunbladid-hvernig-dettur-ther-hug-ad-ganga-svona-fram/

📰 Aðrar fréttir

Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 2
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 3
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 3
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 1
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 3
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
📅 11.10.2026 👁️ 1
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND) Fréttin11. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Úkraína ætti að skipta út V...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
📅 10.10.2026 👁️ 1
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir Fréttin10. október 2026ErlentLeave a Comment King Khalid-alþjóðaflugvöllurinn...
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
📅 10.10.2026 👁️ 1
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á Að­eins 15 pró­sent hafa já­kvætt álit á Macron Frakk­lands­for­seta. Eldsneytis­verð í Frakklandi er í sögu­l...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan og hefur ...
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tólf manns eru látnir og 309 særðir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag, að sögn flugmálayfirvalda...
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku...
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 4
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
K-kúrfu hagkerfið
📅 10.10.2026 👁️ 4
K-kúrfu hagkerfið
K-kúrfu hagkerfið Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­in...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...
Páll og Selma Eir eiga von á dreng
📅 10.10.2026 👁️ 1
Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Páll og Selma Eir eiga von á dreng Selma Eir og bumbubúinnEkki kemur fram í færslunni hvenær megi búast við þeim litla Mynd: Instagram Páll Edwald og ...
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
📅 10.10.2026 👁️ 4
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
Hvert einasta sæti var skipað og rúmlega það á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Ræða formannsins og forsætisráðherrans bar heitið Styrk hö...
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
📅 10.10.2026 👁️ 5
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
Roofs were ripped off buildings after Isaias barrelled into the US on Friday evening, before it weakened to a post-tropical cyclone.
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
📅 10.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
Karlmaður er látinn eftir árás tígrisdýrs í dýragarði skammt frá borginni Doncaster í Jórvíkurskíri á Englandi. Lögregla segir manninn hafa farið inn ...
Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
📅 10.10.2026 👁️ 1
Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks Sólveig Anna JónsdóttirBjörn gagnrýnir Sólveigu Önnu rækilega í nýrri færslu. Mynd: Bára...
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
Meðal bílastæðanna fimmtán sem verða tekin aftur í notkun eru tvö við Kaffi Babalú á Skólavörðustíg þar sem fréttamaður hitti þær Guðnýju Maríu Jóhann...
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
Lögregla var komin á vettvang aðeins örfáum mínútum eftir að tilkynning barst henni um skothvelli úr íbúðarhúsi. Allir níu voru þegar látnir þegar lög...
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
📅 10.10.2026 👁️ 5
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu...
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
📅 10.10.2026 👁️ 5
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
The team en route to the suspected crash site aim finally to solve the mystery of her 1937 disappearance.
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
Um helgina fer fram sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll en fagsýningarfyrirtækið Ritsýn stendur fyrir sýningunni. Hátt í hundrað sýne...
Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
📅 10.10.2026 👁️ 1
Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga Carla og ErikaErika var afar ósátt við úrslitin Mynd: Skjáskot Carla Jade hélt Misfits-m...
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
📅 10.10.2026 👁️ 5
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
Visitors to Corralejo have a new place to capture their holiday photographs following the installation of a tourist selfie spot made entirely from rec...
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
📅 10.10.2026 👁️ 5
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.Hann er Volodomyr Zelens...
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 5
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
📅 10.10.2026 👁️ 1
Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið Mynd: Lára Garðarsdóttir Tveir einstaklingar gista í fangaklefa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar...