Rúmlega fimmtugur Patreksfirðingur hefur verið ákærður fyrir hættubrot vegna starfsmannahrekks í fiskeldisstöðinni í Þverá í Vatnsfirði í Vesturbyggð.
Atvikið átti sér stað mánudagskvöldið 11. nóvember árið 2024. Brotaþoli er maður á sama aldri og ákærði, sem er sakaður um að hafa „af gáska og á ófyrirleitinn hátt,“ að því er segir í ákæru héraðssaksóknara, stofnað heilsu hans í augljósan háska, með því að hafa veitt honum köku sem innihélt ótilgreint magn af tetróhýdrókannabínól.
Upplýsti ákærði brotaþola ekki um innihald kökunnar en hann virðist hafa borðað hana af bestu lyst. Einkennin af þessari neyslu voru vægast sagt óþægileg en brolaþoli fékk ofsóknarkennd, svitnaði, fann til kvíða og fékk hraðan hjartslátt.
Krefst brotaþoli 800 þúsund króna í miskabætur.
Málið verður þingfest við Héraðsdóm Vestfjarða á Ísafirði þann 4. maí næstkomandi.