Framkvæmdastjóri Hagkaups segir að starfsfólki hafi orðið bylt við þegar hótun barst á skrifstofu fyrirtækisins í Skútuvogi í morgun. Hótunin hafi verið þess eðlis að talið var skynsamlegt að hafa samband við lögreglu, þar sem vopnaburði var hótað.
Sá sem hringdi inn hótaði að beita bæði skotvopni og eggvopni. Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, staðfestir það.
Lögregla segist hafa grun um hver hafi hringt á skrifstofuna og hótað starfsfólki. Unnið sé að því að hafa uppi á honum til að ná tali af honum. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.
Sigurður segist ekki hafa viljað taka neina sénsa í morgun.
„Við fáum símtal frá aðila sem hringir á skrifstofu og hefur uppi ákveðnar hótanir sem við myndum flokka sem alvarlegar. Það alvarlegar að við heyrum í lögreglunni,“ segir Sigurður í viðtali við fréttastofu.
Hann segir lögreglu hafa ráðlagt þeim að taka hótuninni alvarlega.
„Í framhaldinu mætir lögreglan á svæðið, til okkar á skrifstofuna, ásamt víkingasveit sem mér skilst að sé standard viðbragð þegar vopnaburði er hótað.“
Þá hafi verið ákveðið að rýma húsið til að gæta fyllsta öryggis. Starfsfólkið var sent heim og lögregla rannsakaði málið. Sem fyrr segir telur lögregla sig hafa komist að því hver það var sem hringdi og í kjölfarið hafi starfsfólki verið sagt að hætta væri ekki á ferð.
Lögregla hafi sagt að óhætt væri að halda áfram störfum á skrifstofunni í dag. Sigurður segir starfsmenn fá að ráða því hvort þeir ljúki vinnudeginum að heiman eða snúi aftur á skrifstofuna.
„Ég einhvern veginn met þetta nú þannig að þetta hafi bara verið einstaklingur sem ekki var á góðum stað og notaði gífuryrði og stór orð. Við tókum enga sénsa.“
Hann segir starfsfólki hafa verið brugðið.
„Menn hrökkva í kút. Það er alveg staðfest að mönnum varð bylt við. Þeir sem taka við svona símtölum, þeim stendur ekki alveg á sama, eðlilega. Auðvitað var smá skjálfti í starfsfólki hér, yfir að þetta væri að gerast, en ég held að menn hafi verið fljótir að róast og skilja ástandið.“