Samstarf meiri- og minnihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar virðist ekki ganga neitt sérstaklega vel. Í fjölda fundargerða, síðan að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks tók til starfa eftir kosningar í vor, hefur mátt lesa harðorðar deilur á milli minni- og meirihluta. Hefur minnihlutinn kvartað mjög yfir skorti á samráði og segir að það sé breyting frá því að síðasti meirihluti var við stjórnvölinn. Hafa oddvitar minnihlutans sagt of mikil völd hafa færst á hendur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra.
Spyrja hver stjórni Reykjanesbæ - Vilhjálmur sé að verða alvaldur