Ný úttekt á lestrarmenningu Íslendinga sýnir að æði misjafnt er eftir leikskólum hvort og hvernig bókakaupum er háttað. Það sama gildir um lestrarstefnuna. Úttektin nær yfir bókasöfn allra skólastiga auk almenningsbókasafna.
Úttektin og meðfylgjandi skýrsla voru rædd í Kastljósi í kvöld.
Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, og Unnar Geir Unnarsson, safnstjóri Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal, eru sammála um að lítið í skýrslunni komi á óvart þeim sem starfi í bókageiranum.
Unnar Geir segir það miður að heyra hve handahófskennd bókainnkaup og bókastefna sé í leik- og grunnskólum landsins. Hann minnir á að skólabókasöfn, jafnt sem almenningsbókasöfn, séu lögbundin þjónusta.
„Læsi er svo mikilvægt,“ segir Unnar Geir. „Ef við missum af okkar lesendum, okkar íbúum, á þessum stað þá er mjög erfitt að ná þeim til baka seinna.“
Skólabókasöfn sums staðar hillur frammi á gangi
Margrét segir leikskóla- og grunnskólabókasöfn öflugustu jöfnunartækin í samfélaginu.
„Það er svo gríðarleg mismunun gagnvart börnum fólgin í því að þetta sé bara einhvern veginn. Sum skólabókasöfn eru stórkostlegar menningarstofnanir en svo í öðrum skólum er skólabókasafnið hillur frammi á gangi,“ segir Margrét.
Hún segir að í mörgum skólum séu nánast engin skráð útlán. Óljóst sé hvort það sé vegna þess að börn geti gengið í bækurnar án aðstoðar eða að börn séu einfaldlega ekki að taka bækur.
Unnar Geir og Margrét segja að rauði þráðurinn í skýrslunni sé skortur á fjármagni.
„Það er rosalega vont að það sé ekki ákveðin fjárheimild. Svoleiðis var það, skilst mér, þegar grunnskólinn var hjá ríkinu,“ segir Margrét.
Hún segir dæmi um að bókasöfn spari sér í innkaupum á unglinga- og fullorðinsbókum því þær séu hvort sem er ekki lesnar.
„Ef þetta á að vera sparnaður fyrir sveitarfélögin þá er þetta rosalegur kostnaður fyrir samfélagið.“