Mikil umræða hefur skapast eftir að myndbönd fóru í dreifingu, en þau sýna spænska lögreglumenn lumbra á aðgerðasinnum á flugvellinum í Bilbao á laugardag. Fjórir meðlimir úr Global Sumud Flotilla hópnum voru handteknir eftir átök sem brutust út þegar spænsk sendinefnd sneri aftur frá Tyrklandi.
Á myndböndunum má sjá lögreglumenn draga mótmælendur eftir gólfi flugstöðvarinnar og slá með kylfum. Sumir segja lögregluna hafa gengið alltof langt á meðan aðrir telja aðgerðasinnana sjálfa hafa átt upptökin að átökunum.
Global Sumud Flotilla er hópur aðgerðasinna sem tengist Gaza flotanum svokallaða, sem hefur reynt að vekja athygli á ástandinu á Gaza og mótmæla aðgerðum Ísraela með siglingum og alþjóðlegum aðgerðum.
Atvikið kemur aðeins nokkrum dögum eftir að spænsk stjórnvöld gagnrýndu Ísrael harðlega fyrir meðferð þeirra á meðlimum hópsins. Ísraelsk stjórnvöld hafa nú hins vegar vísað á myndböndin frá Bilbao og sagt þau sönnun þess að aðgerðasinnarnir skapi óeirðir hvar sem þeir koma.
Fyrst í stað sáust eingöngu myndbönd sem sýndu lögregluna lumbra á fólkinu en nú hefur myndbandið verið birt í heild sinni.
El guarro de la flotilla que provoca la carga policial es José Javier Osés Carrasco, etarra condenado a 8 años de prisión.
Ahora imagínate ser Ertzaintza y estar allí presente. Poco. Poco calor negro desplegaron.
Indar eta Ohore. pic.twitter.com/hUn8UAaG5e
— Macarena Olona (@Macarena_Olona) May 25, 2026