Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins sóttu að Vilhjálmi Árnasyni, nýjum bæjarstjóra Reykjanesbæjar, á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag, greiddu fulltrúarnir atkvæði gegn ráðningu hans og gagnrýndu „ofurlaunasamning“ og ráðningu aðstoðarmanns. Vilhjálmur er oddviti Sjálfstæðisflokksins og er nú í meirihluta með Miðflokknum, verður hann með 2,6 milljónir króna í bæjarstjóralaun ofan á 240 þúsund krónur sem kjörinn fulltrúi. Réð hann nýverið Hermann Nökkva Gunnarsson sem aðstoðarmann sinn, hann var áður blaðamaður á Morgunblaðinu.
Sótt að Vilhjálmi á bæjarstjórnarfundi: „Núverandi aðstoðarmaður er ekki á sviðsstjóralaunum“