Barron Trump, nítján ára gamall sonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta, hefur nú stigið sín fyrstu skref í viðskiptalífinu með þátttöku í nýju drykkjarvörufyrirtæki.
Barron er stjórnarformaður SOLLOS Yerba Mate, sem var stofnað ásamt hópi vina hans frá Suður-Flórída ekki alls fyrir löngu.
Hefur fyrirtækið nú hafið sölu á fyrstu vörunni, en um er að ræða lífrænan yerba mate-orkudrykk með ananas- og kókoshnetubragði sem sagður er sniðinn að lífsstíl unga fólksins í Flórída.
Drykkurinn er enn sem komið er aðeins fáanlegur í einni bragðtegund. Hann er seldur í 12 dósa pakkningum á 39 Bandaríkjadali, sem jafngildir rúmlega 4.800 íslenskum krónum á núverandi gengi. Hver dós inniheldur 50 hitaeiningar og 120 milligrömm af náttúrulegu koffíni.
Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast hafa ákveðið að einbeita sér að einni bragðtegund til að byrja með í stað þess að hefja sölu með fjölbreyttu úrvali. Markmiðið hafi verið að fullkomna vöruna áður en fleiri útgáfur yrðu kynntar.
Nafn fyrirtækisins, SOLLOS, á að vísa til sólarhringsins. „SOL“ er spænska orðið fyrir sól og táknar sólarupprás, en „LOS“ er sama orð stafað aftur á bak og á að tákna sólarlag. Fyrirtækið segir nafnið endurspegla lífið í Flórída, sem oft er kallað „sólskinsríkið“ í Bandaríkjunum.
Verðlagning drykkjarins hefur þó vakið nokkra gagnrýni. Vefmiðillinn The Daily Beast bendir á að 12 dósir af Red Bull kosti að jafnaði á bilinu 17 til 25 dali, sem er töluvert minna en SOLLOS rukkar fyrir sína vöru.
Þrátt fyrir það hafa fyrstu viðbrögð neytenda almennt verið jákvæð. Notendur á samfélagsmiðlinum X hafa birt jákvæða dóma um drykkinn og gagnrýnandi hjá Slate hrósaði honum einnig. Þar kom fram að þótt varan væri dýr hefði hún komið á óvart með góðu bragði.
Barron Trump hefur hingað til haldið sig að mestu utan sviðsljóss stjórnmálanna, en með þessari nýju viðskiptatilraun virðist hann vera að marka sér eigin leið eins og faðir hans gerði með góðum árangri áður en hann haslaði sér völl í stjórnmálum.