Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, birti í gær nýja prófílmynd á Facebook þar sem hún lýsir því yfir að hún muni kjósa gegn áframhaldandi aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið.
Færslan vakti gríðarleg viðbrögð og á einungis nokkrum mínútum fylltist athugasemdakerfið af persónulegum árásum og dónalegum ummælum frá fólki sem er henni ósammála.
Þótt margir hafi fært fram rök með kurteisum hætti og lýst yfir stuðningi við áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið, fóru aðrir mun harðar í sakirnar og réðust að persónu Sólveigar Önnu fremur en að ræða málið sjálft.
Mörg misjöfn ummæli
Hulda Björnsdóttir skrifaði:
„Ótrúlega heimskuleg hegðun. Hún ætti að snúa sér að öðru og leyfa lýðræðinu að vera í friði.“
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson lét einnig til sín taka og skrifaði:
„Ættir að skammast þín.“
Þegar bent var á að um væri að ræða skoðun Sólveigar Önnu svaraði hann:
„…hún er sjálfri sér til skammar, hvað sem þú segir.“
Maria Þorleifsdóttir sakaði Sólveigu Önnu um að hafa snúið baki við láglaunafólki og skrifaði:
„Viltu útskýra í stuttu máli af hverju þú ert hætt að berjast fyrir bættum kjörum þeirra sem hafa minnst milli handa? Og afhverju þú ert komin í baráttuhóp siðlausra fjármálaelítu?“
Ivar Bjarnason spurði jafnframt:
„Er hún á mála hjá kótakóngunum.“
Guðmundur Sverrisson skrifaði svo:
„Til vinstri með auðmönnunum. Betur viðeigandi!“
Fjöldi annarra sakaði Sólveigu Önnu um að verja spillingu eða vinna gegn lýðræðinu. Guðjón Jensson spurði meðal annars hvort hún væri að gefa í skyn að hún vildi „áframhaldandi spillingu auðmanna í íslensku samfélagi“, á meðan Þórður Óldal Sigurjónsson sagði að hún væri „í reynd að verja peningaöflin“.
Sumir komu henni til varnar
Ekki voru þó allir sammála þessum tón í umræðunni. Sigrún Jónsdóttir, sem sagðist sjálf ætla að kjósa með áframhaldandi viðræðum, gagnrýndi persónuárásirnar og skrifaði:
„Ég er þarna alveg ósammála … en að velja formælingar og persónulegar svívirðingar ættu að vera fyrir neðan virðingu allra með snefil af sjálfsvirðingu.“
Ingibjörg Jónasar tók í sama streng og sagði að það væri „lágmark að fólk sem kemur inn á síðuna hennar Sólveigar sýni kurteisi þó það sé henni ósammála“.