Sorpa ver verulegum fjármunum í að hreinsa upp rusl sem skilið er eftir við grenndarstöðvar í Reykjavík og Kópavogi. Kostnaður sveitarfélaganna tveggja vegna umhirðunnar nemur samtals 94 milljónum króna á þessu ári.Morgunblaðið greinir frá þessu í dag og ræðir við Gunnar Dofra Ólafsson, sviðsstjóra þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, sem segir umfang vandans mikið.„Manni svíður þessi kostnaður. Þarna eru mjög fáir að búa til mikinn kostnað fyrir hina,“ segir Gunnar Dofri í samtali við Morgunblaðið.
Sóðaskapurinn kostar yfir 100 milljónir – „Þarna eru mjög fáir að búa til mikinn kostnað”