Gestalistann skipa þau Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Logi Einarsson menningar-, nýsköðunar og háskólaráðherra.
Því næst mæta í settið markaðs- og sölustjórar Sýnar og Árvakurs þeir Guðmundur H. Björnsson og Magnús E. Kristjánsson. Loks er von á þeim Helgu Guðrúnu Johnson og Sigmundi Erni Rúnarrssyni sem tóku þátt í að búa fréttastofu Sýnar, áður Stöðvar 2, til á sínum tíma.
Líkt og fram hefur komið verður staðan í ferðaþjónustunni rædd í þættinum en þá sérstaklega aukin skattheimta sem er farin að hafa áhrif á framþróun og fjárfestingar í greininni.
Svo verður staða einkarekinna fjölmiðla tekin fyrir, ekki síst í ljósi þess að sjónvarpsfréttir Sýnar voru lagðar niður nú í upphafi vikunnar.
Þátturinn er á Bylgjunni alla Sunnudaga frá klukkan tíu til tólf en hann er einnig að finna hér á Vísi.