Gestir á Bræðslunni á Borgarfirði eystra leituðu skjóls í yfirbyggðri sparkhöll í bænum vegna roks og rigningar í nótt.
„Liðlega tvö leituðu fyrstu gestir Bræðslunnar aðstoðar vegna tjalda sem voru fokin eða ónothæf orðin vegna veðurs. Bætti aðeins í þann hóp eftir því sem leið á nóttina,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.
Illa viðraði til útilegna í nótt og fyrrinótt í Borgarfirði þar sem fjöldi manns kom saman um helgina.
Tvær tilkynningar bárust um slagsmál í nótt og hlynnt var að tveimur. Þau mál eru bæði til rannsóknar hjá lögreglu.
Fréttastofa greindi frá því í gær að einnig hefði komið til slagsmála í fyrrinótt. Samkvæmt heimildum fréttastofu kom til átaka á milli þeirra sem önnuðust gæslu á tjaldsvæðinu og gesta.
Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, segir að það sé óvenjulegt að slagsmál komi upp á hátíðinni. Bræðslan hafi í áranna rás farið vel fram.
Viðvera lögreglu er alltaf umtalsverð á Bræðslunni, sem og björgunarsveitarfólks og heilbrigðisstarfsmanna.
Í tilkynningu lögreglunnar segir að um tíuleytið hafi vaknað grunur um að skúta væri að losna í höfninni. Tveggja manna áhöfn var um borð og ekkert amaði að.
Þá var ökumaður tekinn snemma í morgun grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. „Lögregla hvetur í því sambandi ökumenn til að gæta vel að hæfi sínu til aksturs áður en af stað er haldið eftir skemmtun næturinnar.“