Skrautlegar nágrannaerjur á Selfossi hafa nú ratað fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, en þar takast eigendur tvíbýlis á um meint bifvélaverkstæði og ónæði sökum karókísöngs.Málið varðar tvílyft hús sem skiptist í tvo eignarhluta. Kærandi í málinu er eigandi neðri hæðar en sá hafði fyrst samband við byggingarfulltrúa Árborgar á árinu 2020 og kvartaði þá undan umgengni eigenda efri hæðar og gerði athugasemdir við viðbyggingu við húsið, númeralaus ökutæki á lóð og grun um óheimila atvinnustarfsemi í húsnæðinu, þ.e. meintan rekstur sólbaðsstofu.
Skrautlegar nágrannaerjur á Selfossi - Tekist á um karókísöng og meintan atvinnurekstur í bílskúr