Framtíðarásýnd Garðabæjar og uppbygging í ört stækkandi samfélagi voru í brennidepli í oddvitaumræðum í gær og ljóst að afar skiptar skoðanir eru um hvert eigi að stefna. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagði að kosningarnar myndu að miklu leyti snúast um uppbyggingu.
Hiti færðist í umræðuna þegar sjónum var beint að fyrirhugaðri uppbyggingu á norðanverðu Álftanesi, þar sem gert er ráð fyrir 9 holu golfvelli og að húsum fjölgi úr tæplega 40 í um 200.
Hlynur Bæringsson, oddviti Framsóknarflokksins, vill að þessum áformum verði frestað. Þau séu merki um að skipulagsferli þurfi að vera hraðara og skilvirkara. Hann telur að innleiða ætti hvata til að flýta megi framkvæmdum almennt.
„Við erum ekki bara að vaxa til að vaxa,“ sagði Almar. Mögulega séu of mörg hús á teikniborðinu en að tekið yrði tillit til athugasemda við áformin í samráðsferli. Hann kvaðst sammála því að hægt væri að auka skilvirkni en að skipulagsferlið sé mun opnara í Garðabæ en annars staðar.
„Auðvitað tefur það verkefni aðeins en þetta býr líka oft til meiri sátt í umhverfinu.“
Kjartan Atli Kjartansson, oddviti Samfylkingarinnar, sagði að móta þyrfti langtímastefnu, byggða á gögnum, um framtíðaríbúðaþörf. Ákall sé eftir minni íbúðum til að ungt fólk geti búið áfram í Garðabæ þegar það flytur úr foreldrahúsum.
„Samhliða því að skipuleggja byggð til langs tíma þurfum við að gera átak í að fegra bæinn sem er fyrir.“
Guðlaugur Kristmundsson, oddviti Viðreisnar, sagði að taka þyrfti til í rekstrinum til að svara því hvort stækka eigi bæinn. Leggja þurfi áherslu á menningu og samkomustaði og sýna þolinmæði í þróun slíkra hugmynda.
„Ef við búum þetta ekki til þá verða nýju hverfin gegnumstreymishverfi,“ sagði Guðlaugur. „Hugmyndirnar verða að fá að gerjast í samfélaginu í samtali meðal fólks og fólk er að kalla eftir rými til að vera saman.“
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, oddviti Garðabæjarlistans, og Lárus Guðmundsson, oddviti Miðflokksins, voru sammála um að líta mætti til uppbyggingar á reit við Hofstaðaskóla og Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Hins vegar voru þau ekki alfarið á sama máli um hvernig hann skyldi nýttur.
Lárus telur reitinn vera kjörinn stað fyrir nýjan miðbæjarkjarna Garðabæjar á meðan Þorbjörg telur hann nýtast betur undir íbúðir.
„Við erum algjörlega á móti þéttingu byggðar,“ sagði Lárus. Byggja þurfi meira af lágreistum fjölbýlishúsum og fleiri sérbýli í stað þess að fjölga stórum fjölbýlishúsum. Við skipulag nýrra byggða þurfi að taka meira tillit til þeirra hverfa sem þegar eru. „Ekki byggja og skaða þá sem búa næst ykkur.“
Þorbjörg sagði uppbyggingu ekki aðeins snúast um ásýnd bæjarins heldur þyrfti að tryggja að byggt yrði fyrir alla hópa samfélagsins.
„Hér hefur verið rekin mjög skýr séreignastefna. En það hefur ekki verið byggt af sama krafti fyrir fólk sem tilheyrir tekjulægri hópum, það hefur ekki verið byggt í samvinnu við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög eða búseturéttarfélög,“ sagði Þorbjörg.
„Við viljum að hér sé byggt fyrir alla hópa samfélagsins. Við viljum með þessu vinna gegn einsleitni í Garðabæ og gæta þess að hér getum við öll búið.“