Jens Skrede, framkvæmdastjóri Cruise Europe, segir íslensk stjórnvöld hafa tekið slæma ákvörðun þegar skemmtiferðaskipaskatturinn var lagður á í fyrra.
Þá voru lögð á 2.500 króna innviðagjöld á farþega skemmtiferðaskipa auk þess sem tollfrelsi var afnumið.
Í samtali við mbl.is bendir Skrede á það sem fram hefur komið, að skatturinn hafi leitt til færri heimsókna skemmtiferðaskipa til landsins. Smærri hafnir í dreifðari byggðum landsins hafi orðið fyrir barðinu á því.
270 þátttakendur skráðir
Nú er ráðstefnu Cruise Europe, sem haldin var í Hörpu, að ljúka og verður hún kórónuð með vígslu nýju farþegamiðstöðvarinnar Vör í Sundahöfn Reykjavíkur.
Cruise Europe eru samtök rúmlega 140 hafna, áfangastaða og þjónustuaðila í Evrópu, allt frá Lissabon í suðri til Svalbarða í norðri.
Skrede segist hæstánægður með ráðstefnuna sem haldin er í fyrsta skipti á Íslandi frá stofnun samtakanna árið 1991.
Ársfundur Cruise Europe er haldinn á hverju ári víðs vegar um Evrópu en segir Jens þessa líðandi ráðstefnu „sennilega þá bestu sem hafi nokkurn tímann verið haldin“. Metaðsókn var á ráðstefnuna í ár en um 270 þátttakendur voru skráðir allt í allt.
„Fegurðin við þessar ráðstefnur er að það er mjög hæfileikaríkt og mikilvægt fólk í skemmtiferðabransanum sem mætir að ræða bæði iðnaðartækifæri en einnig áskoranir, og hvernig við getum orðið betri.”
Næstu ár gætu leitt góða hluti í ljós
Segir hann þetta ekki síður mikilvægan viðburð fyrir ferðamannaiðnað Íslands og muni hagsmunaaðilar þá sjá „áhrif þessarar viku á næstu árum hvað varðar fleiri komur og fleiri gesti“.
Fundir vikunnar hafi verið árangursríkir.
„Ég held að Ísland muni örugglega ná sér á strik á næstu árum, vegna þess að eyjan er fullkominn áfangastaður fyrir skemmtiferðaskip."
Jens sagðist dolfallinn af nýju farþegamiðstöðinni Vör og segir hana vera á heimsmælikvarða. Vör muni ekki einungis gagnast Reykjavík og Íslandi heldur öllu Norður-Atlantshafssvæðinu, þar með talið Skotlandi, Færeyjum og norsku fjörðunum.
„Við ættum öll að vera mjög stolt af þeirri fjárfestingu.“

