Aðdáendur David Hasselhoff eru áhyggjufullir eftir að myndir hafa birst af honum þar sem hann er orðinn gjörsamlega óþekkjanlegur. Hefur hann meðal annars þurft að vera í hjólastól eða ganga með göngugrind. Þá er hann mjög grár, tekinn í andlitinu og veiklulegur.
Hasselhoff var ein skærasta sjónvarpsstjarnan á tíunda áratug síðustu aldar. Fór hann á með aðalhlutverkið í þáttunum Strandverðir (e: Baywatch) ásamt Pamelu Anderson, Eriku Eleniak og fleirum.
En Hasselhoff var fleira til lista lagt. Gaf hann meðal annars út tónlist og náði þó nokkrum vinsældum í Þýskalandi.

Hasselhoff er nú orðinn 73 ára gamall en lítur út fyrir að vera töluvert eldri. Orsökina má finna í að hann hefur barist við ýmis konar heilsuvandamál á undanförnum árum, bæði líkamleg og andleg.
Um tíma barðist hann við alkóhólisma sem var svo alvarlegur að umgengnisréttur hans við börnin var skertur. Þá hefur hann einnig þurft að undirgangast liðskiptaaðgerðir á bæði hnjám og mjöðmum.
Þrátt fyrir að útlit hans og hreyfingar virðist ekki vera mjög beysnar þá sagði talsmaður hans nýlega að Hasselhoff væri í góðri virkni og væri að ná bata.