Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist

Hafnarfjarðarbær hefur greitt Haraldi Sverrissyni, fyrrverandi bæjarstjóra Mosfellsbæjar, að minnsta kosti 19 milljónir króna fyrir ráðgjöf og samningaviðræður vegna fyrirhugaðrar lóðar Tækniskóla Íslands við Flensborgarhöfn. Þrátt fyrir umfangsmikla vinnu tókst bænum ekki að tryggja allar þær lóðir sem nauðsynlegar voru fyrir verkefnið.
Spegillinn greinir frá þessu.
Haraldur gerði samning við Hafnarfjarðarbæ í júní 2023 en hafði þá þegar unnið fyrir bæinn í um tvo mánuði og fengið greiddar um 2,5 milljónir króna. Samkvæmt samningnum var tímagjald hans 25 þúsund krónur. Fram í nóvember í fyrra hafði hann unnið samtals um 760 klukkustundir fyrir bæinn og fengið fyrir það 19 milljónir króna.
Meginverkefni Haraldar var að undirbúa samninga og taka þátt í viðræðum við eigendur lóða á fyrirhuguðu Tækniskólasvæði. Haraldur og Rósa Guðbjartsdóttir, þáverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, eru bæði í Sjálfstæðisflokknum.
Viðskiptin við Harald voru hvorki boðin út né gerði Hafnarfjarðarbær sérstaka verðkönnun hjá öðrum mögulegum þjónustuaðilum. Fjárhæð samningsins var undir útboðsskyldu samkvæmt lögum um opinber innkaup. Bærinn vísaði meðal annars til umfangsmikillar reynslu Haraldar af sveitarstjórnarmálum og samningaviðræðum um lóðir.
Í desember síðastliðnum sagði Hafnarfjarðarbær við Spegilinn að samningar vegna flestra lóðanna væru „ýmist frágengnir eða langt komnir“. Þá hafði þó ekki tekist að semja um tvær stærstu og verðmætustu eignirnar á svæðinu.
Gögn málsins benda jafnframt til þess að vandinn hafi verið þekktur um nokkurt skeið. Í minnisblaði Haraldar, sem lagt var fyrir bæjarstjórn tveimur árum fyrr, kom fram að viðræður við nokkra lóðarhafa gengju illa eða alls ekki.
Þegar upp var staðið hafði bærinn aðeins náð samningum um kaup á eignum fyrir um einn milljarð króna. Áformin um byggingu Tækniskólans á svæðinu gengu því ekki eftir eins og stefnt hafði verið að.