Sjálfstæðisflokkurinn í Borgarbyggð hefur ákveðið að hefja formlegt samtal við Borgarbyggðarlistann um meirihlutasamstarf. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Sjálfstæðismanna í Borgarbyggð.
Borgarbyggðarlistinn er framboð félagshyggjufólks í Borgarbyggð og Skorradalshreppi.
Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig einum fulltrúa í kosningunum um helgina og er með þrjá. Hann var í meirihluta með Framsókn, sem missti þrjá fulltrúa um helgina og er með tvo. Miðflokkurinn fékk tvo fulltrúa.