Sjálfstæðisflokkurinn og Borgarbyggðarlistinn handsöluðu í gær meirihlutasamkomulag fyrir næstu fjögur árin í Borgarbyggð. Formlegar viðræður hófust flokkanna á milli á miðvikudaginn.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá fulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum um liðna helgi og Borgarbyggðarlistinn fékk tvo. Á síðasta kjörtímabili var Framsóknarflokkurinn með hreinan meirihluta en hann tapaði þremur mönnum í kosningunum.