Sterkasta röksemd Nei-sinna er að aðild myndi svipta okkur fullveldi. Þeir hafa þetta öfugt. Og 29. ágúst höfum við tækifæri til að leiðrétta það.Hér er staðreynd sem sjaldan er rædd: í gegnum EES-samninginn höfum við nú þegar tekið upp um tvo þriðju af löggjöf Evrópusambandsins. Við lifum eftir reglum þess á fjölmörgum sviðum, en við sitjum ekki við borðið þar sem reglurnar eru settar.Við höfum engan atkvæðisrétt. Enga rödd.Það er nákvæmlega staða leiguliðans: þú býrð í húsinu, þú fylgir reglum húsbóndans, en þú átt ekkert í því og ræður engu um það.
Sigvaldi Einarsson skrifar: Við erum nú þegar leiguliðar, bara án atkvæðisréttar