Sigurjón Andrésson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skaftárhrepps. D-listinn og óháðir hlutu meirihluta í sveitarstjórn Skaftárhrepps eða þrjá menn af fimm.
„Ég er bæði spenntur og þakklátur fyrir þetta tækifæri. Fram undan eru spennandi verkefni og ég hlakka til að vinna með íbúum, starfsfólki og sveitarstjórn að áframhaldandi þróun og uppbyggingu Skaftárhrepps,“ er haft eftir Sigurjóni í tilkynningu.
Sigurjón hefur komið víða við á sveitarstjórnarstiginu. Síðustu ár hefur hann verið bæjarstjóri Hornafjarðar, en hann var áður verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu Ölfusi. Þá hefur hann setið í sveitarstjórn Flóahrepps.