Sjósundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hóf í kvöld 50 kílómetra sund niður Lagarfljót.
Áætlað er að sundið taki um 20-24 klukkustundir og stefnir Sigurgeir á að koma í land á morgun við Stóra-Steinsvað í Hjaltastaðaþinghá.
Sigurgeir syndir til styrktar Píeta-samtakanna en það gerði hann einnig í fyrra þegar hann reyndi við Ermarsund.
