Sigurður Fannar Þórsson fannst látinn í klefa sínum í Fangelsinu Hólmsheiði á sunnudagsmorgun. Samkvæmt heimildum DV er talið að hann hafi svipt sig lífi.
Sjá einnig: Fangi tók eigið líf á Hólmsheiði í morgun
Sumarið 2025 var Sigurður Fannar fundinn sekur um að hafa banað 10 ára dóttur sinni, haustið 2024, að Hraunhólum við Krýsuvíkurveg, skammt vestan við Vatnsskarðsnámur.
Var hann dæmdur í 16 ára fangelsi. Sigurður Fannar játaði sök fyrir dómi en sagðist ekki hafa hugmynd um hvers vegna hann banaði dóttur sinni. Hann sagði: „Þetta væri það síðasta sem ég myndi vilja gera við litla engilinn minn.“
Kemur jafnframt fram í dómnum að hann stríddi við svefnleysi dagana fyrir ódæðið og var uppfullur af ofsóknarbrjálæði og ranghugmyndum. Upplifði hann yfirþyrmandi vondar minningar úr barnæsku sem gerðu hann reiðan og ofsahræddan. Hann glímdi við geðræn vandamál en var engu að síður talinn sakhæfur samkvæmt mati þriggja geðlækna, sem töldu að það bæri að refsa honum fyrir ódæðið.
Sjá einnig: Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Sálgæsla var í boði fyrir fanga og fangaverði á Hólmsheiði í gær vegna þessa voðaatburðar. Minnst tveir aðrir fangar hafi tekið eigið líf í fangelsum hér á landi á undanförnum árum, einn árið 2023 og annar árið 2024.
Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.