Lögmaður fjölskyldu Andemariams Beyene, sem lést eftir plastbarkaígræðslu, segir dóm í málinu ekki aðeins áfellisdóm yfir Tómasi Guðbjartssyni lækni, Landspítalanum og íslenska ríkinu, heldur einnig yfir læknadeild Háskóla Íslands og Læknafélagi Íslands.
Íslenska ríkið var dæmt bótaskylt vegna stórfellds gáleysis Tómasar, sem að mati héraðsdóms leiddi með beinum og fyrirsjáanlegum hætti til tjóns og andláts Andemariams, tæpum þremur árum eftir að plastbarkinn var græddur í hann.
Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður fjölskyldu mannsins sem sótti málið gegn íslenska ríkinu, segir dóminn mikinn sigur fyrir fjölskylduna.
„Hann lést í í janúar 2014 og síðan lét ríkið, eða Háskóli Íslands og læknadeild Háskóla Íslands og Landspítalinn létu vinna skýrslu og sú skýrsla varpaði ljósi á allt það misferli sem hafði átt sér stað. Engu að síður þá töldu stjórnendur, þáverandi stjórnendur Landspítalans og þeir sem fara fyrir heilbrigðisyfirvöldum, ekki sérstaka ástæðu til greiða bætur, og voru andsnúnir því,“ segir Sigurður.
Læknar reynt að verja Tómas
„Það er bara fyrst eftir að núverandi forstjóri kemur að spítalanum og hann fer að velta því fyrir sér hvort ekki þurfi að ljúka þessu máli með einhverjum hætti þannig að sómi sé að fyrir íslenska læknastétt, fyrir Landspítalann og Háskóla Íslands. Því þetta er líka mikill dómur yfir læknadeild Háskóla Íslands, því þar hafa menn innandyra reynt að verja þetta mál,“ segir Sigurður. Það hafi Læknafélag Íslands einnig gert.
„Það hefur sannað sig að það getur verið erfitt að brjóta á bak aftur andstöðu sérfræðinga, þó þeir ættu að gera sér grein fyrir því að það sem átti sér stað var ekki í lagi.“
Mál Tómasar til skoðunar hjá embætti landlæknis
Dómurinn er mjög harðorður í garð Tómasar. Sigurður segir það ekki í hans að meta hvort Tómasi sé stætt að starfa sem áfram sem læknir.
„En heilbrigðisyfirvöld hljóta að velta því fyrir sér hvort það sé rétt að maður sem fær svona dóm sinni læknisstörfum eða kennslu.“
Fréttastofa hefur leitað viðbragða hjá embætti landlæknis, Landspítalanum og Háskóla Íslands um mál Tómasar Guðbjartssonar. Upplýsingafulltrúi landlæknis staðfestir að embættið hafi málið til skoðunar en að öðru leyti geti það ekki fjallað um málefni einstakra heilbrigðisstarfsmanna.
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir ekki liggja fyrir hvort málinu verði áfrýjað. Þegar lokaniðurstaða liggur fyrir muni háskólinn bregðast við eftir tilefni.
Fréttastofa fær viðtal við forstjóra Landspítalans síðdegis.
Tómas er í veikindaleyfi bæði frá Háskóla Íslands og Landspítalanum.
Fréttin var uppfærð eftir að svar barst frá embætti landlæknis.