Framkvæmdastjóri Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, hefur staðfest að Evrópusambandið hyggst leggja fram lagafrumvarp eftir sumarfrí sem felur meðal annars í sér samevrópskt aldursstaðfestingarforrit fyrir notkun samfélagsmiðla. Markmiðið er, eins og alltaf, sagt vera að vernda börn á netinu og tryggja að samfélagsmiðlar geti sannreynt aldur notenda sinna.
Von der Leyen sagði að umræðan snerist ekki um það hvort börn eigi að hafa aðgang að samfélagsmiðlum heldur hvort samfélagsmiðlar eigi að hafa aðgang að börnum. Að hennar sögn er aldursstaðfestingarforritið eitt af þeim úrræðum sem geti stuðlað að auknu öryggi barna á netinu.
„Þetta snýst í raun um að færa foreldrum aftur valdið,“ sagði hún meðal annars og líkti fyrirkomulaginu við reglur sem gilda um ökuréttindi og áfengiskaup ungmenna.
Segir verið að selja eftirlit sem barnavernd
Paul Walsh, sérfræðingur í netöryggismálum fyrir börn, hefur gagnrýnt áformin harðlega. Hann segir að þrátt fyrir að barnavernd sé notuð sem yfirskin sé í raun verið að innleiða kerfi sem krefjist þess að milljónir Evrópubúa sanni hverjir þeir eru áður en þeir geti tekið þátt í umræðu á netinu.
Walsh segir fullyrðingar von der Leyen um að forritið verndi friðhelgi einkalífs notenda vera ómarktækar. Að hans mati sé ómögulegt að sannreyna aldur einstaklings án þess að sannreyna auðkenni hans á einhvern hátt.
Hann bendir á að þó að upplýsingum sé hugsanlega ekki alltaf deilt með samfélagsmiðlum breyti það ekki þeirri staðreynd að notendur þurfi fyrst að leggja fram persónugreinanleg gögn til að fá staðfestingu.
Foreldrar sviptir ákvörðunarvaldinu
Walsh gagnrýnir einnig að stjórnvöld séu að taka sér það hlutverk að ákveða hvað sé viðeigandi fyrir öll börn og ungmenni á netinu, óháð vilja foreldra þeirra.
Að hans mati eru til fjölmörg úrræði sem foreldrar geta þegar nýtt sér, svo sem aldurstakmarkanir í símtækjum, foreldraeftirlit og takmarkanir á tilteknum öppum. Hann segir að sumir foreldrar treysti unglingum sínum til að nota samfélagsmiðla á ábyrgan hátt og að ríkið eigi ekki að skipta sér af slíku.
Hann gagnrýnir sérstaklega samanburð von der Leyen við ökuréttindi og áfengiskaup og segir hann villandi. Foreldrar ákveði sjálfir hvenær börn þeirra fái bíllykla í hendurnar og enginn sé neyddur til að sanna hver hann sé við inngang verslunarmiðstöðvar vegna þess að þar sé mögulegt að kaupa áfengi á einhverjum stöðum.
Varar við „stafrænum eftirlitsstöðvum“
Walsh segir jafnframt að umræða Evrópusambandsins um aldursstaðfestingu og önnur frumvörp á borð við svokallað „Chat Control“ sýni skýra þróun í átt að aukinni auðkenningarskyldu á netinu.
Hann hafnar því einnig að aldursstaðfesting sé tæknileg lausn sem muni útrýma áhættu barna á netinu. Von der Leyen hafi sjálf viðurkennt að kerfið verði ekki fullkomið og að hægt verði að komast fram hjá því.
Samkvæmt Walsh leiðir það til grundvallarspurningar: annað hvort virkar kerfið eða það gerir það ekki. Ef það virkar ekki sé verið að skerða friðhelgi einkalífs hundruða milljóna Evrópubúa án þess að ná einu sinni því markmiði sem því er ætlað að þjóna.
Walsh segir að lokum að stjórnvöld séu að kynna kerfi fyrir almenningi sem eigi að vernda börn en muni í raun þýða að bæði börn og fullorðnir þurfi í auknum mæli að auðkenna sig til að lesa efni, skrifa færslur og taka þátt í opinberri umræðu á netinu.
Lagafrumvarpið verður að óbreyttu lagt fram eftir sumarfrí Evrópusambandsins. Þá mun koma betur í ljós hvort aldursstaðfestingarforritið verði skilyrði fyrir notkun samfélagsmiðla innan sambandsins og hversu víðtækar kröfur verða gerðar um auðkenningu notenda.
Ursula von der Leyen has confirmed that everyone in the EU will need to use the EU’s app for identity authentication before being able to access or post on social media websites.
🇪🇺 As an expert in online child safety, I am here to expose the misinformation and misdirection in…
— Paul Walsh (@Paul__Walsh) July 13, 2026
🔴🇪🇺 FLASH – Ursula Von der Leyen confirme bien qu’il y aura une application européenne pour l’authentification sur les réseaux sociaux.
L’union européenne va donc avoir accès aux cartes d’identités de tous les européens qui vont devoir les présenter pour se connecter sur les… pic.twitter.com/iL9eq5FkG9— Jon De Lorraine (@jon_delorraine) July 13, 2026