Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, sendi opið bréf til Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta í dag. Í bréfinu leggur hann til að forsetarnir tveir hittist á fundi augliti til auglitis. Fjögur ár eru liðin frá innrás Rússa í Úkraínu.
Donald Trump Bandaríkjaforseti fagnar tillögu Zelensky en segir að bæði Rússland og Úkraína þurfi að gera málamiðlanir svo hægt sé að koma á friði milli landanna. Það telst afar sjalfgæft að Zelensky ávarpi Rússlandsforseta með þessum hætti.
Aðeins með beinum samskiptum leiðtoganna sé hægt að koma á friði
Í svari Kremlar við bréfinu segir að Pútín hafi enn ekki lesið bréfið. Zelensky segir að aðeins með beinum samskiptum, sé hægt að koma á friði og ljúka stríðinu. Zelensky leggur til að valin sé tiltekin dagsetning fyrir fundinn.
Úkraínumenn hafa gert umfangsmiklar drónaárásir á innviði Rússlands undanfarna daga. Gerð var drónaárás á olíuinnviði í Sankti Pétursborg í gær stuttu áður en alþjóðleg efnahagsráðstefna hófst í miðborginni Kreml hefur sagt að Moskva þurfi að styrkja loftvarnir sínar vegna fjölda drónaárása Úkraínumanna.