Í vikunni var sendur út síðasti kvöldfréttatími Sýnar sem þýðir að í fyrsta sinn í tæp 40 ár eru kvöldfréttir aðeins í boði í Ríkissjónvarpinu. Er þetta merki um versandi stöðu fjölmiðla eða eru þetta breyttar neysluvenjur? Þarf að gera eitthvað til að bregðast við stöðunni og þá hvað? Farið er yfir stöðu fjölmiðla í þættinum Átakalínur þar sem rætt er við Eyrúnu Magnúsdóttur á Gímaldinu og Rósu Guðbjartsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins. Hér má horfa á þáttinn í heild sinni:
Átakalínur: Staða fjölmiðla á Íslandi í dag