Vegagerðin segir blátt skilti vara við aðstæðum
Vegagerðin segir að hún hafi aukið merkingar eftir banaslys árið 2007. Rannsóknarnefnd sagði merkingu um hættulega beygju ábótavant. Þá merkingu vantar enn, en Vegagerðin telur blátt skilti vara við aðstæðum.
„Eftir banaslysið árið 2007 voru settar upp auknar merkingar eins og rannsóknarnefnd samgönguslysa hafði lagt til,“ segir í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn Heimildarinnar vegna skorts á beygjumerkingu á Krýsuvíkurveginum þar sem banaslys ungmenna varð aðfaranótt mánudags.
Heimildin greindi frá því að annað umferðarslys hefði orðið á nákvæmlega sama vegkafla á Krýsuvíkurveginum árið 2007. Þá lést vélhjólamaður sem ók á miklum hraða. Sá lést einnig þegar hann endaði á steini sem er utan vegar um miðbik beygjunnar.
Segja blátt skilti varar við varasömum aðstæðum
Í niðurstöðu Rannsóknarnefndar umferðarslysa (RNU) sagði að merkingum um hættulega beygju hefði verið ábótavant auk þess sem það þyrfti að lækka hámarkshraða á svæðinu. Engar merkingar er að finna um beygjuna enn í dag, en öðrum fyrirmælum var fylgt eftir samkvæmt tilmælum RNU, auk þess sem varað er við gatnamótum Bláfjallaafleggjara.