„Frelsið er besta ávöxtunin sem peningar gefa manni“
Hjónin Georg Lúðvíksson og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir þýddu bókina Sálfræði peninganna - sígildar lexíur um auðlegð, græðgi og hamingju. Bókin hefur farið sigurför um heiminn en þar er ekki fjallað um leiðir til að græða heldur er viðfangsefnið nálgast út frá nýju sjónarhorni. Georg segir að einmitt þess vegna hafi bókin kallað sterkt á þau hjónin.
Georg Lúðvíksson hefur getið sér gott orð sem tæknifrumkvöðull og einn helsti sérfræðingur landsins í fjármálum heimilanna, sem hefur verið hans starfsvettvangur í 20 ár.
Hann hefur sinnt fjármálaráðgjöf og kennslu en er líklega þekktastur sem einn stofnenda Meniga, þar sem hann starfaði sem forstjóri í 13 ár. Undanfarið hefur Georg unnið að undirbúningi nýs fjártæknifyrirtækis sem heitir Spesía og snýst um að hjálpa Íslendingum að fjárfesta með einföldum hætti í alþjóðlegu eignasafni hlutabréfa og skuldabréfa, en þjónusta Spesíu fer í loftið á næstu vikum. Georg er menntaður verkfræðingur frá Háskóla Íslands og er að auki með MBA-gráðu frá Harvard. Hann segir að bókin hafi kallað sterkt á þau hjón og sé að hans mati besta bókin um fjármál fyrir almenning sem hefur komið út á þessari öld. Bókin er aðgengileg og segir sögur af mannlegri hegðun í peningamálum og sálfræðina sem liggur að baki henni, og hvernig skilningur á …