Þetta kemur fram í spá og hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofunni.
Þá segir að á morgun nálgist lægð úr suðri með vaxandi austan- og norðaustanátt, en útlit sé fyrir norðan hvassviðri með suðausturströndinni annað kvöld með rigningu suðaustan- og austantil undir miðnætti. Áfram verði milt sunnanlands, einkum suðvestanlands, en heldur svalara norðvestanlands.
Síðdegis á mánudag á að draga úr vindi og úrkomu þegar lægð fjarlægist landið og tekur stefnuna á Skotland. Yfirleitt verður hægari vindur og úrkomulítið vestanlands og með kvöldinu lægir víða. Hiti að 15 stigum syðra, en 5 til 10 stig norðanlands með líkum á næturfrosti.