Myndin til­einkuð mömmu - Vísir

Myndin til­einkuð mömmu - Vísir

Myndin til­einkuð mömmu - Vísir

Þetta segir Höskuldur Þór Jónsson, leikstjóri og höfundur söngvamyndarinnar Hvar er draumurinn? sem er til sýnis í öllum helstu bíóhúsum landsins um þessar mundir. Kvikmyndin hefur vakið töluverða athygli til þessa enda byggð á ástsælum lögum Sálarinnar hans Jóns míns sem flestir landsmenn kannast við. 

Vonarstjarnan enginn nýgræðingur 

Ekki nóg með að hafa leikstýrt myndinni þá skrifaði Höskuldur einnig handritið, framleiddi myndina og klippti og því sannkallaður þúsundþjalasmiður. Þó að þetta sé fyrsta kvikmynd Höskuldar og þrátt fyrir að vera aðeins 28 ára er hann langt frá því að vera nýgræðingur í bransanum. Hann er til dæmis einn af þeim sem komu að því að setja sumarleikhúsið Afturámóti á laggirnar en það hefur nú verið starfrækt þrjú sumur í röð með góðum árangri.

Þar hefur hann leikstýrt nokkrum verkum, til að mynda söngleiknum Með allt á hreinu með lögum Stuðmanna sem sló rækilega í gegn í sumar. Hann hefur tvisvar leikstýrt söngleik í Verzlunarskóla Íslands og þá leikstýrði hann sínum fyrsta söngleik, Ðe lónlí blú bojs, árið 2019 sem var sýndur á fjölum Bæjarbíós. Nokkrum árum síðar leikstýrði hann söngleiknum Hlið við hlið en þar var unnið með lög úr smiðjum Friðriks Dórs. 

Höskuldur kveðst ánægður með fyrstu kvikmyndina sína.Vísir/Anton Brink

 Það má því segja að Höskuldur sé ein helsta vonarstjarna íslensk menningarlífs. Blaðamaður sló á þráðinn til að rekja sögu þess hvernig lög þessarar ástsælu hljómsveitar urðu að söngvamynd þrátt fyrir enga styrki til framleiðslu þar sem úrvalslið hæfileikafólks gaf vinnu sína yfir mánaðarskeið sumarið 2025. 

Ýmsir úr upprunalegu sýningunni fengu traustið

Kvikmyndin hefur í raun verið í vinnslu í um fjögur ár en árið 2023 sýndi Höskuldur söngleikinn Hvar er draumurinn í Verzlunarskóla Íslands. Hugmyndin hafi komið til hans skömmu eftir að hann hafi fengið tækifæri til að leikstýra fyrir Nemendamótsnefnd Verzló þar sem ýmsir leikstjórar og leikarar stíga sín fyrstu skref. 

„Ég var bara í fríi og þá kom Sálin á fóninn og þá hugsaði ég auðvitað: Bíddu Sálin, af hverju hefur þetta ekki verið gert áður? Þá fór ég að skoða þetta og þróa. Verzló leist mjög vel á þetta, þannig að úr varð söngleikurinn Hvar er draumurinn?,“ segir Höskuldur á meðan hann hugsar um farinn veg en þess er gaman að geta að fjölmargir leikarar og dansarar úr söngleiknum 2023 bregður fyrir á hvíta tjaldinu í myndinni, í bakgrunni eða sem dansarar í stærri senum. 

Sigríður Ragnarsdóttir, sem fer með eitt aðalhlutverkanna í myndinni, fór einnig með sama hlutverk fyrir þremur árum þegar hún var enn í Verzlunarskólanum en hún er nú á leiklistarbraut í Listaháskóla Íslands. 

Þakklátur mömmu og Sálinni

Höskuldur tileinkar myndina móður sinni enda segist hann ekki vita um stærri aðdáanda Sálarinnar. 

„Sálin hefur lengi loðað við mann. Maður er alinn upp á heimili þar sem að Sálin var mikið spiluð, þannig að maður fékk þetta alveg beint í æð. Mamma mín spilaði hana mjög mikið. Maður á ófáar góðar og hlýjar minningar af því þegar maður sat í aftursætinu í bíl með mömmu á rúntinum og hún var alltaf með Sálina skrúfaða upp í botn. Við höfum nú nokkrum sinnum þurft að klípa okkur í gegnum þetta ferli. Að fá að taka þennan efnivið og þennan tónlistararf og fá tækifæri og traust til að skapa úr því,“ segir hann og tekur fram að hann sé ævinlega þakklátur meðlimum Sálarinnar.

„Það er ekki sjálfsagður hlutur að fá það traust og þeir voru til í að hleypa mér bara svolítið með lausan tauminn. Ég náttúrulega bara tek þetta og sé eitthvað í þessu og fæ að búa til eitthvað og skapa sögu í kringum þetta.“

Framlag Heklu er ómetanlegt að mati Höskuldar.aðsend

Það má segja að um ákveðið fjölskylduverkefni sé að ræða en til að mynda eru flestir sem koma að myndinni með einum eða öðrum hætti úr sama vinahópnum. Þá er kærasta Höskuldar, Hekla Nína Hafliðadóttir, framleiðandi myndarinnar ásamt Höskuldi.

„Það var náttúrulega draumur í dós. Hún er búin að vera algjör klettur og frábært að fá hana með mér í þetta. Það er mjög mikið að bera þetta einn og hún er búin að bera mig á herðum sér í þessu öllu. Það var ekki annað hægt en að fá hana með í þetta og hún stóð sig eins og hetja. Bæði á tökutímabilinu og í aðdraganda forsýningarinnar,“ segir hann og bætir við að gott fólk skipti öllu máli þegar haldið er í verkefni sem þetta án styrkja og án baklands. 

Höskuldur segir í rauninni að það hafi ekki neitt annað komið til greina annað en að gera Hvar er draumurinn? að kvikmynd eftir að hafa sýnt það í Verzló. Hann kveðst þó glaður að hafa ekki vitað um hvers konar óvissuferð var að ræða þegar haldið var af stað enda sé gífurleg vinna að baki með alls konar hæðum og lægðum. Nokkrum dögum eftir frumsýningu er hann enn algjörlega búinn á því.

„Þetta er náttúrulega mikið spennufall og maður er nú svolítið svona eins og sprungin blaðra. Maður er náttúrulega búinn að leggja líf og sál í þetta allt saman. Þetta er vissulega mjög mikið spennufall og nú er maður búinn að senda þetta frá sér og vonandi líkar fólki vel við og orðið spyrst vel út. Vonandi á þetta sér eitthvað gott líf núna.“

„Þetta er dýrt spaug“

Hann segir viðbrögðin hingað til ekki hafa leynt sér. Jákvæðum skilaboðum hafi rignt yfir forsvarsmenn myndarinnar undanfarna daga. Hann segir miðasölu og annað þó vera algjört aukaatriði og tekur fram að mikilvægast séu þær góðu stundir sem einkenndu ferlið og sú staðreynd að hafa tekist að framleiða mynd í fullri lengd.

„Það er algjör bónus hversu vel mun seljast á þetta. Við erum ekki að gera þetta fyrir peningana. Þetta er algjört ástríðuverkefni og tækifæri fyrir alla sem komu að þessu að fá að skapa. Það er stærsti þátturinn í þessu. Að skapa þessa kvikmynd og sýna á stóra tjaldinu.“

Hann segist þakklátur öllum þeim sem lögðu hönd á plóg í að gera þetta að veruleika en fjöldi fólks gaf vinnuna sína. Þar á meðal eru leikarar sem teljast með þeim efnilegustu hér á landi og hafa þegar gert sig gilda á fjölum Borgarleikhússins og Þjóðleikhússins. 

Kvikmyndin er sýnd í ölllum helstu kvikmyndahúsum.vísir/anton brink

„Maður hefði aldrei getað gert þetta nema allir hefðu verið til í það. Ég bauð fólki að vera með og taka þátt í einhverju sem myndi ekkert endilega gefa neinn aur eða skilja skilding eftir sig. Þannig að allir komu inn í þetta á þeim forsendum að við ætluðum að reyna að skapa eitthvað. Þetta er dýrt spaug.“

Hann tekur fram að þrátt fyrir að ferlið hafi verið ævintýralega skemmtilegt hafi það ekki verið neinn dans á rósum. Nóg var um alls konar áskoranir enda um fámennt framleiðsluteymi að ræða.

„Þetta var klárlega mjög þungur róður. Við auðvitað byrjuðum að reyna að fara hina hefðbundnu leið að fá einhverja styrki og sóttum um svona temmilega litla styrki. Þetta er náttúrulega fyrsta kvikmyndin manns og þá eins og kannski er eðlilegt að þá er erfitt að fá fullan styrk. En við allavega sóttum um en það gekk ekkert. En maður lét það ekkert stoppa sig sko, þannig að þá var bara ákveðið að kýla á þetta.“

„Ég sé ekki eftir neinu“

Draumurinn sem margir leita að hafi svo sannarlega verið til staðar þetta sumar þar sem góðra vina hópur kom saman til að gera bíó.

„Ég sé ekki eftir neinu. Þetta var einhver besti tími lífs okkar í rauninni. Við komum saman þarna einn mánuð, góður hópur og skutum bíómynd. Þetta var bara ógeðslega gaman. En eins og þú segir að þá kostar þetta líka rosa mikla vinnu og svona ákveðnar fórnir. Að vera þarna launalaust og ekkert endilega vitandi hvort það kæmi einhver peningur í kassann til þess að borga upp skuldirnar og þess háttar,“ segir hann og heldur áfram:

„Þetta tökutímabil var bara eitt stórt hláturskast. Þetta er náttúrulega það sem maður býður svolítið heim þegar maður tekur vinahóp og setur hann í þessar aðstæður. Fólk var þarna bara á hjartanu.“

Hann tekur fram að þetta muni þó alltaf borga sig enda hafi verkefnið reynst hinn besti skóli. 

„Kvikmyndagerð er náttúrulega algjör frumskógur. Þú ert ekki að gera neitt nema að leysa vandamál allan daginn. Alltaf að bregðast við einhverju og reyna að leysa hverja áskorunina á eftir annarri. Þú ert endalaust að finna einhverjar lausnir og reyna að komast í gegnum þetta.“

Draumurinn að vera bæði í kvikmyndum og leikhúsi

En hvað er framundan hjá Höskuldi núna? Maður hefur séð þig á sviðinu, bæði í persónu sem dansari og sem leikstjóri. Núna leikstýrir þú bíómynd, ertu meira að færa þig yfir í þá sálma? 

„Draumurinn er svolítið að vera þarna beggja vegna. Bíóið hallar rosalega á mig þessa stundina en á sama tíma á leikhúsið alltaf hjartað mitt líka. Ég var einmitt að setja upp söngleik þarna í Háskólabíói í sumar og það var líka rosalega gaman. Maður vonar nú innilega að þetta sé ekki mín fyrsta eða síðasta bíómynd. Núna ætlar maður svolítið að safna kröftum og byrja að vinna í einhverjum hugmyndum og þróa það áfram.“

#myndin #mömmu #tileinkuð #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262930642d/myndin-til-einkud-mommu

📰 Aðrar fréttir

Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps
📅 21.10.2026 👁️ 0
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps Fréttin21. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comm...
Gagnrýnir frumraun Kylie Jenner hjá Victoria’s Secret og fyrirtækið harðlega: „Hún er ekki með líkama fyrirsætu“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Gagnrýnir frumraun Kylie Jenner hjá Victoria’s Secret og fyrirtækið harðlega: „Hún er ekki með líkama fyrirsætu“
Adrianne Curry gagnrýndi Victoria’s Secret-tískusýninguna harðlega fyrir að fá Kylie Jenner til að koma fram á sýningunni á sunnudagskvöldið, og sagði...
Þórður Snær: stál, byrlun og leki
📅 21.10.2026 👁️ 1
Þórður Snær: stál, byrlun og leki
Þórður Snær: stál, byrlun og leki Fréttin21. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Þórður Snær Júlíusson. Páll Vilhjálmsson...
Mögnuð breyting á systrunum - Hafa misst samtals um 300 kíló
📅 21.10.2026 👁️ 0
Mögnuð breyting á systrunum - Hafa misst samtals um 300 kíló
Það er ótrúlegur munur á systrunum Amy og Tammy Slaton, en þeim hefur báðum tekist að léttast gífurlega og lifa heilsusamlegra lífi.Systurnar eru stjö...
Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman - Vísir
Norðurhjálp hefur það sem af er þessu ári afhent einstaklingum og fjölskyldum í fjárhagsvanda bónuskort til matarinnkaupa að verðmæti yfir tuttugu mil...
Lexíur og leikhúsið
📅 21.10.2026 👁️ 1
Lexíur og leikhúsið
Lexíur og leikhúsið Sigríður Jóns­dóttir skrifar um Högg eftir James Graham, sem sýnt er í Þjóð­leik­hús­inu. Högg er enskt verð­launa­leik­rit eftir ...
Íbúðareigendur í Gufunesi verulega ósáttir - Áttu ekki von á nýju húsi svo nálægt sínu
📅 21.10.2026 👁️ 0
Íbúðareigendur í Gufunesi verulega ósáttir - Áttu ekki von á nýju húsi svo nálægt sínu
Eigendur íbúða í fjölbýlishúsinu að Jöfursbási 5b, í Gufunesi í Reykjavík, eru verulega ósáttir við byggingu nýs fjölbýlishúss á næstu lóð við þeirra ...
Starfsfólk Orkunnar dælir eldsneyti til styrktar Bleiku slaufunni
📅 21.10.2026 👁️ 0
Starfsfólk Orkunnar dælir eldsneyti til styrktar Bleiku slaufunni
Starfsfólk Orkunnar tekur þátt í Bleika deginum í dag, miðvikudaginn 21. október, þegar þau taka yfir eldsneytisdælurnar á Orkustöðinni við Dalveg mil...
Elliði svarar Jasminu: „Ég veit ekki til þess að þú hafir valdið neinum skaða“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Elliði svarar Jasminu: „Ég veit ekki til þess að þú hafir valdið neinum skaða“
Segja má að samfélagsmiðlar hafi logað eftir ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, í garð múslima. Í gærkvöldi steig Jasmina Vajzovic, fyrrve...
Framlengja gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum í stórum fíkniefnamálum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Framlengja gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum í stórum fíkniefnamálum
Landsréttur staðfesti á föstudag og mánudag þrjá úrskurði Héraðsdóms Reykjaness og einn úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir mönnum se...
Frakkar í vanda: Vextir hækka
📅 21.10.2026 👁️ 1
Frakkar í vanda: Vextir hækka
Frakkar í vanda: Vextir hækka Nið­ur­skurður í opin­berum útgjöldum er helsta kveikja mót­mæla Frakka, en ófriður eykur á vand­ann. Vaxta­á­lag á Frak...
Stephen Hubbard: Russia frees US citizen Stephen Hubbard, state media reports
📅 21.10.2026 👁️ 0
Stephen Hubbard: Russia frees US citizen Stephen Hubbard, state media reports
Stephen Hubbard has been taken to Pulkovo Airport, Putin said during talks with US envoy Steve Witkoff.
Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal - Vísir
Unnur Lilja var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni um þessa árás. Hún segir algengt að það komi upp einhver atvik í fjölmennum útskriftarferðum og að fó...
Skoða áætlunar­siglingar milli Skot­lands og Ís­lands - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Skoða áætlunar­siglingar milli Skot­lands og Ís­lands - Vísir
Skoskir fjölmiðlar greina frá þessu og segja viðræður vera hafnar milli Múlaþings og hafnaryfirvalda í Aberdeen. Þá sé ónefnt fyrirtæki búið að sýna s...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvað vill unga fólkið okkar verða?
📅 21.10.2026 👁️ 0
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvað vill unga fólkið okkar verða?
Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. En hvaða fyrirmyndir býður þorpið upp á?Hverju myndi tíu ára barn svara ef við spyrðum það í dag: „Hvað langa...
Jón Gnarr lýsir töpuðum bardaga: „Það hefur því miður verið fátt um svör“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Jón Gnarr lýsir töpuðum bardaga: „Það hefur því miður verið fátt um svör“
Jón Gnarr segir að sig hafi skort stuðning í pólitískri baráttu sinni og að hann hafi jafnvel farið að efast um hvort nokkur raunveruleg áætlun væri t...
Telur allt ógirt land tekið eignar­námi með dómi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Telur allt ógirt land tekið eignar­námi með dómi - Vísir
Landeigendurnir stefndu Fjarðabyggð og kröfðust þess að skaðabótaskylda sveitarfélagsins yrði viðurkennd. Töldu þeir að lög um afréttarmálefni og fjal...
Þingkonan missti báða fætur eftir á­rásina - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Þingkonan missti báða fætur eftir á­rásina - Vísir
Toyota Land Cruiser-jeppa var ekið á Helen Haines, óháðan þingmann á ástralska þinginu, í heimabæ hennar Wangaratta á mánudag. Vitni sögðu að ökumaður...
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum Vonin um að halda hlýnun undir 1,5 gráðum frá því fyrir iðn­bylt­ingu er „horfin“, segja Sam­ein­uðu ...
Hvalfjarðargöng lokuðust stutta stund vegna bilaðs bíls
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hvalfjarðargöng lokuðust stutta stund vegna bilaðs bíls
Hvalfjarðargöngum var lokað á níunda tímanum vegna bilaðs bíls í göngunum. Búið er að opna þau aftur Tilkynnt var um lokunina á vef Vegagerðarinnar kl...
Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus - Vísir
Danól og Bónus hefja hrekkjavökugleðina snemma í ár. Búið er að reisa sérstaka Haribo-kastala í tveimur verslunum Bónus, á Smáratorgi og í Miðhrauni. ...
Hval­fjarðar­göng opin á nýjan leik - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hval­fjarðar­göng opin á nýjan leik - Vísir
Lokað var fyrir umferð um Hvalfjarðargöng vegna bifreiðar sem bilaði í göngunum um klukkan átta í morgun. Klukkan 8.48 voru göngin opnuð að nýju.
Viðræður hafnar um ferju milli Seyðisfjarðar og Aberdeen
📅 21.10.2026 👁️ 0
Viðræður hafnar um ferju milli Seyðisfjarðar og Aberdeen
Til skoðunar er að koma á siglingum á milli borgarinnar Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarfélagið á í viðræðum við hafnaryfirvöld þar í la...
Bukangi: Huge crowds watch shark stranded in Busan, South Korea
📅 21.10.2026 👁️ 0
Bukangi: Huge crowds watch shark stranded in Busan, South Korea
A third attempt has been made to guide the 9ft 10in (3m) shark back to the open sea.
Hefur misst 90 kíló en það er einn hængur á
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hefur misst 90 kíló en það er einn hængur á
Bandaríski leikarinn John Goodman, sem er meðal annars þekktur fyrir leik sinn í Roseanne, The Big Lebowski og The Righteous Gemstones, hefur misst rú...
Opnar sig loksins um hvað réði úrslitum um flutninginn aftur til Bretlands
📅 21.10.2026 👁️ 0
Opnar sig loksins um hvað réði úrslitum um flutninginn aftur til Bretlands
Harry prins flutti aftur til Bretlands ásamt eiginkonu sinni, Meghan Markle, og börnum þeirra tveimur til að skapa „tækifæri fyrir fjölskylduna.“„Að g...
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack
📅 21.10.2026 👁️ 0
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack
Her alleged attacker, 43-year-old Brendan Nugent, faces multiple charges and appeared in court for the first time on Wednesday.
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack, husband says
📅 21.10.2026 👁️ 0
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack, husband says
Her alleged attacker, 43-year-old Brendan Nugent, faces multiple charges and appeared in court for the first time on Wednesday.
Man charged after Hackney attacks on three Jewish women
📅 21.10.2026 👁️ 1
Man charged after Hackney attacks on three Jewish women
The women suffered minor injuries when they were assaulted at Clapton Common, police say.
Missti báða fætur eftir árásina
📅 21.10.2026 👁️ 1
Missti báða fætur eftir árásina
Ástralskur þingmaður sem keyrt var á í fyrradag missti báða fætur. Læknar sem gerðu aðgerð á henni töldu nauðsynlegt að fjarlægja þá báða.Phil Haines,...
Nýi sómalski þingmaðurinn í Svíþjóð er með stóran hala skulda og svika á eftir sér – Fær þingmannalaun þó hann tilkynni sig veikan og láti ekki ná í sig
📅 21.10.2026 👁️ 0
Nýi sómalski þingmaðurinn í Svíþjóð er með stóran hala skulda og svika á eftir sér – Fær þingmannalaun þó hann tilkynni sig veikan og láti ekki ná í sig
Mohamed Abdukardir Ali, nýkjörinn þingmaður sænska Vinstriflokksins, fær þingmannsgreiðslur þótt hann hafi enn ekki hafið störf á þinginu. Á sama tíma...
Víða hálka á vegum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Víða hálka á vegum
Vegfarendur ættu að hafa varann á sér því víða er hálka eða snjóþekja á vegum úti. Einnig er hálka á vissum stöðum á höfuðborgarsvæðinu.Fram kemur á u...
Skafið og saltað - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Skafið og saltað - Vísir
Skil liggja yfir og við Austfirði sem rignir úr og líklega slydda til fjalla. Síðar í dag koma skilin lengra inn á land og fylgir þeim heldur svalara ...
Chris Mason: Jackdaw approved but tricky energy trade-offs remain
📅 21.10.2026 👁️ 1
Chris Mason: Jackdaw approved but tricky energy trade-offs remain
Jackdaw and Rosebank are case studies in the slow motion awkwardness the UK has over energy.
Fyrirsæta látin 34 ára að aldri
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fyrirsæta látin 34 ára að aldri
Ástralska fyrirsætan Sahara Ray er látin, 34 ára að aldri. Hún lést sunnudaginn 18. október.Sahara var þekkt sem fyrirsæta en stofnaði síðar eigið sun...
Á sextugsaldri og 4 vinkonur eru að halda framhjá – „Þetta snýst ekki um kynlíf“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Á sextugsaldri og 4 vinkonur eru að halda framhjá – „Þetta snýst ekki um kynlíf“
Jennifer Haldon er kona á sextugsaldri og segir að það sé ákveðið mynstur í gangi hjá vinkonuhópnum hennar. Fjórar vinkonur hennar eru að halda framhj...
Stjörnu­leikur Góa og Unnar bjargar Höggi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Stjörnu­leikur Góa og Unnar bjargar Höggi - Vísir
Högg – Þjóðleikhúsið. Frumsýning 16. október 2026 Höfundur: James Graham byggt á bók Jacob Dunne. Leikstjóri: Magnús Geir Þórðarson. Leikmynd: Ilmur S...
Lukkaðist loks að virkja Gullfoss
📅 21.10.2026 👁️ 1
Lukkaðist loks að virkja Gullfoss
Lukkaðist loks að virkja Gullfoss Eigendur að Gull­foss­kaffi hafa safnað digrum sjóðum. Þeir hófu inn­heimtu á bíla­stæði sínu á sama tíma og rík­is­...
Cabildo rejects 308-bed hotel extension and tourist villa project in Playa Blanca
📅 21.10.2026 👁️ 0
Cabildo rejects 308-bed hotel extension and tourist villa project in Playa Blanca
Plans for a hotel extension providing 308 extra beds in Playa Blanca, have been rejected by the Lanzarote Cabildo after inspectors found that part of ...
Svalt og sums staðar úrkoma
📅 21.10.2026 👁️ 1
Svalt og sums staðar úrkoma
Hiti verður sums staðar rétt yfir frostmarki í dag og fer mest í átta stig á Austfjörðum. Útlit er fyrir slyddu til fjalla og getur snjóað í 200 metra...
Fær hvorki bætur né af­sökunar­beiðni eftir að hafa stungið sig á saum­nál - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Fær hvorki bætur né af­sökunar­beiðni eftir að hafa stungið sig á saum­nál - Vísir
Nefndin segir í úrskurði sínum að ekki sé í lögum að finna heimild sem skyldar nefndina til að biðja eiganda bílsins til að biðja leigjandann afsökuna...
Her­lið á leiðinni og Ís­lendingar hafi varann á - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Her­lið á leiðinni og Ís­lendingar hafi varann á - Vísir
Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast fles...
5 ways to build an evening-first city break in Europe
📅 21.10.2026 👁️ 0
5 ways to build an evening-first city break in Europe
The waiter brings Friday's dinner bill just after ten. Someone suggests another drink, and the hotel is only twenty minutes away. Then Saturday's 8:30...
Af hverju fá nemendur sem uppfylla hæfniviðmið ekki hæstu einkunn?
📅 21.10.2026 👁️ 0
Af hverju fá nemendur sem uppfylla hæfniviðmið ekki hæstu einkunn?
Nemendum í 10. bekk grunnskóla verður gefin lokaeinkunn í tölustöfum í vor samkvæmt nýju einkunnakerfi, verði áætlanir menntamálaráðherra að veruleika...
Rubio segir fund Zelenskys og Witkoffs jákvæðan
📅 21.10.2026 👁️ 1
Rubio segir fund Zelenskys og Witkoffs jákvæðan
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að fundur milli Volodomyr Zelensky Úkraínuforseta og Steve Witkoff, erindreka Bandaríkjastjórnar, ...
Ryanair flight to Tenerife diverted after passenger suffers medical emergency
📅 21.10.2026 👁️ 0
Ryanair flight to Tenerife diverted after passenger suffers medical emergency
A Ryanair flight carrying passengers from Dublin to Tenerife South had to be diverted to mainland Spain yesterday, Tuesday 20th October, after a passe...
Tvö á einu raf­magns­hlaupa­hjóli og flutt á bráða­mót­töku - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Tvö á einu raf­magns­hlaupa­hjóli og flutt á bráða­mót­töku - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem farið er yfir verkefni embættisins frá fimm í gær til fimm í nótt. Slysið átti sér...
Inflation and government borrowing highest for a year ahead of next week's Budget
📅 21.10.2026 👁️ 0
Inflation and government borrowing highest for a year ahead of next week's Budget
Inflation accelerated to 3.5% from 3.1% in the year to September, according to the Office for National Statistics (ONS).
Thomas Möller skrifar: Af hverju er Ísland svona dýrt?
📅 21.10.2026 👁️ 1
Thomas Möller skrifar: Af hverju er Ísland svona dýrt?
Mynd Það vakti athygli nýlega að meirihlutinn í Reykjavík lagði fram
WEDNESDAY WEATHER: Rain pre-alert activated in four of the Canary Islands
📅 21.10.2026 👁️ 1
WEDNESDAY WEATHER: Rain pre-alert activated in four of the Canary Islands
A mixture of bright spells, cloud and showers are forecast across the Canary Islands today, Wednesday 21st October, with conditions varying considerab...