Frá þessu er greint í dagbók lögreglu sem nær yfir tímabilið frá klukkan 17 til 05.
Málinu er ekki lýst frekar en það er fært til bókar hjá lögreglustöð 1 sem sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðbæ og á Seltjarnarnesi.
Í sama umdæmi er einnig greint frá því að lögregla hafi viðhaft eftirlit með aldri gesta á skemmtistöðum.
Einnig var ökumaður sektaður fyrir að nota ekki bílbelti.