Sjö voru flutt á slysadeild í gærkvöld eftir að bíl var ekið á ljósastaur austan við bensínstöð Olís í Norðlingaholti. Vísir greinir frá. Ekki liggur fyrir hvort um hafi verið að ræða fólksbíl eða stærri bíl en aðeins einn bíll kom við sögu í slysinu. Enginn hlaut alvarlega áverka í slysinu en um var að ræða einn ökumann og sex farþega.
Umferðarslys í Norðlingaholti: Sjö fluttir á slysadeild