Umhverfisáhrif af tveimur vindtúrbínum á Sauðaneshálsi í Langanesbyggð verða rannsökuð. Fyrirtækið Wpd Ísland kærði ákvörðun um umhverfismat og fór fram á að hún yrði ógilt, úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði því.
Þýska orkufyrirtækið WPD sem hér á landi hefur verið kallað WPD Wind Iceland North eða WPD Ísland, hefur undanfarin ár lýst áhuga á að koma upp vindvirkjunum á nokkrum stöðum á landinu. Það hefur rætt við Langanesbyggð um allt að 47 vindmyllur á Brekknaheiði, suðaustan við Þórshöfn, og aðrar 27 skammt undan á Sauðaneshálsi.
Fyrirtækið hefur unnið að vindmælingum síðustu ár og vill nú reisa tvær vindtúrbínur í tilraunaskyni til að bera saman þessa tvo virkjunarkosti. Sú virkjun yrði allt að 9,9 megavött og túrbínurnar tvær annað hvort 150 eða 180 metra háar. Þetta er aðeins brot af því sem fyrirtækið hefur í hyggju, áform þess um yfir 70 vindmylla orkuver hafa verið skilgreind í rammaáætlun og færu sameiginlega í umhverfismat.
Áhrif af vegavinnu og tilraunavindvirkjun ekki sambærileg
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun ákvað í apríl að tilraunavirkjunin skyldi líka fara í umhverfismat. Fyrirtækið kærði þá ákvörðun til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem það væri íþyngjandi fyrir tilraunaverkefni og bæði tímafrekt og dýrt. Frekar hefði verið hægt að setja framkvæmdinni skorður. Fyrirtækið vísaði meðal annars til gagna sem þegar væri búið að safna um áhrif vindvirkjana á umhverfi annars staðar á landinu. Eins væru til gögn um áhrif framkvæmda við Norðausturveg á fuglalíf.
HMS gaf lítið fyrir þennan samanburð þar sem vegaframkvæmd og vindvirkjanir hefðu gjörólík áhrif á umhverfið.
Úrskurður nefndarinnar féll fyrirtækinu ekki í vil. Nefndin leitaði umsagna víða og segir meðal annars að ábúendum í Langanesbyggð hafi þótt greinilegt að með 9,9 megavatta virkjun væri verið að reyna að komast undan umhverfismati sem er skylda fyrir virkjanir með uppsett afl upp á 10 megavött eða meira.