Donald Trump Bandaríkjaforseti segir sendimenn sína, Steve Witkoff og Jared Kushner, mæta til Rússlands og Úkraínu um helgina með áætlun um hvernig ljúka eigi fjögurra ára löngu innrásarstríðinu. Þeir eru sagðir væntanlegir til Moskvu í dag og Kyiv á morgun.
Að minnsta kosti fjórir voru drepnir í loftárásum Rússlandshers á Dnipropetrovsk suðvestanvert í Úkraínu í nótt að sögn hernaðaryfirvalda. Tveir íbúar níu hæða fjölbýlishúss í borginni Boryspil, skammt frá Kyiv, særðust í loftárás í gærkvöld.
Herir beggja ríkja láta langdrægum eldflaugum og drónum rigna á báða bóga þrátt fyrir tillögu Volodymyrs Zelenskys Úkraínuforseta um vopnahlé meðan á dvöl bandarísku sendimannanna stendur.
Trump segir erindrekana hafa uppi í erminni uppástungu um leið til að ljúka þessu mannskæðasta stríði í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Með þessu vilja bandarísk stjórnvöld höggva á þann hnút sem hefur verið í friðarviðræðum allt frá því þau sjálf hófu atlögur að Íran í febrúarlok.
Trump vildi engu svara um hvort tillögurnar innihéldu kröfu um að Úkraínumenn gæfu eftir landsvæði eins og hann hefur áður lagt til. „Við erum með hugmynd að friði,“ sagði hann. Hvorki Kushner né Witkoff hafa komið til Kyiv frá upphafi stríðsins en iðulega heimsótt Moskvu.