Tölvuleikjafyrirtækið Tetris segir af og frá að það hafi veitt heimild til að nýta þau alkunnu myndrænu einkenni leiksins sem notuð eru í einum af fimm tölvuleikjum sem Trump-stjórnin setti í birtingu á vefsíðu Hvíta hússins á fimmtudag.
Allir leikirnir byggjast á stefnumálum Donalds Trump forseta. Spilarar geta meðal annars reist landamæramúr í leiknum Build the Wall sem byggður er á Tetris.
Fyrirtækið kveðst í yfirlýsingu til AFP-fréttaveitunnar hvorki hafa veitt leyfi fyrir notkun vörumerkisins Tetris né gefið eftir hugverkaréttindi. Fyrirtækið kveðst líta höfundarréttarbrot mjög alvarlegum augum, trúa á sameiningarmátt og samvinnu en alls ekki sundrungu. Verið sé að fara yfir málið innan fyrirtækisins.
Hinir tölvuleikirnir minna mjög á efni og hönnun frá öðrum framleiðendum á borð við Sega, Flappy Bird Foundation og Xbox, sem er í eigu Microsoft. Háværar raddir upphófust sem gagnrýndu hugverkastuld af hálfu stjórnvalda og kynþáttafordóma þeirra um leið og leikjasíða Hvíta hússins var opnuð.
Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt stjórnvöld harðlega. Hvíta húsið boðar fleiri leiki í sama anda. Eitt af helstu stefnumálum Trumps er að koma óskráðu farandfólki úr landi og stjórn hans reynir að sannfæra kjósendur um að vel hafi gengið í aðdraganda kosninga í nóvember.