„Það er einn og einn skjálfti en það er bara eðlileg eftirskjálftavirkni,“ segir Bryndís Ýr Gísladóttir náttúruvársérfræðingur í samtali við Vísi.
Þriggja stiga skjálfti reið yfir í Brennisteinsfjöllum klukkan 20.18 í gær.
Náttúruvársérfræðingurinn segir síðan þá hafi allt að áttatíu skjálftar mælst á svæðinu en allir um eða undi 1,4 að stærð.