Samtals eru það sautján verkefni sem fá úthlutun úr Loftslags- og orkusjóði til að setja upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla á landsbyggðinni. Hleðslustöðvum fyrir rafbíla fjölgar við það um 21 og tenglum um 41.
Þetta er hluti af sérstöku átaki ríkisstjórnarinnar vegna stríðsátaka við Persaflóa og hækkandi olíuverðs, að því er segir á vef Stjórnarráðsins. Markmiðið er að hvergi verði meira en hundrað kílómetrar milli stöðva á þjóðvegum landsins og að í hverju þéttbýli verði hraðhleðslustöð.
Loftslags- og orkusjóður hefur úthlutað styrkjum að fjárhæð 151milljón króna sem ætlað er að þétta net hleðslustöðva fyrir rafbíla. Þrettán fá styrk til uppsetningar á hraðhleðslustöðvum og fjögur til uppsetningar hefðbundinna stöðva. Flest eru á Vestfjörðum og norðanverðu landinu.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að með fjölgun hleðslustöðva fækki því sem hann kallar skallabletti í hleðslunetinu sem vinni gegn hleðslukvíða. Það ásamt afnámi vörugjalda af rafbílum í ársbyrjun skapi tækifæri fyrir fólk að skipta yfir í rafmagnsbíl og aka á innlendri orku.
„Með því að skipta óhreinu innfluttu eldsneyti út fyrir íslenska orku spörum við tugmilljarða gjaldeyri, styrkjum orkusjálfstæði Íslands og verjum heimilisbókhaldið fyrir ytri sveiflum sem við höfum enga stjórn á,“ segir Jóhann Páll. Á öllum stöðvunum verður unnt að borga með greiðslukorti án apps eða áskriftar.