„Hún er að fá ógeðsleg skilaboð með morðhótunum, um að hún verði stungin, að hún verði drepin í skólanum, gerandinn er að mæta heim til stúlkunnar um nætur, taka myndir af húsinu þar sem hún býr. Það hrannast inn skilaboð um að hún eigi að skera sig, drepa sig og hætta að vera svona feit. Að hún sé „nigga“ (en hún er hvít) og að foreldrar hennar hati hana og vilji hana dauða,“ segir áhyggjufull móðir í Reykjanesbæ um meint framferði nemanda við Fjölbrautarskóla Suðurnesja í garð skólasystur sinnar.
Stúlka sökuð um linnulausar ofsóknir í garð skólasystra sinna – „Ég er fyrir utan hjá þér og þú ert að fara að deyja“