Tveir voru handteknir fyrir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt. Ekki kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hversu alvarleg árásin var.
Sjö voru fluttir á slysadeild í gærkvöld eftir að bíl var ekið á ljósastaur nærri bensínstöð Olís í Norðlingaholti. Lögreglumenn höfðu eftirlit með aldri gesta samkomuhúsa í miðborginni og sektuðu ökumann sem ekki notaði bílbelti. Lögreglu í því umdæmi sem þjónar Breiðholti og Kópavogi barst beiðni um aðstoð vegna óláta og slagsmála framan við bar.