Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

Sögufrægt og svipmikið einbýlishús við Bjarkargötu 4 í Reykjavík hefur verið sett á sölu. Húsið á sér óvenjulega sögu en það var upphaflega reist árið 1883 við Thorvaldsensstræti 6 og flutt á núverandi stað árið 1930.
Eignin er alls 323 fermetrar að stærð samkvæmt fasteignaskrá. Þar af er íbúðarhúsið 302,6 fermetrar og bílskúr 20,4 fermetrar. Húsið stendur á 609,5 fermetra gróinni lóð skammt frá Tjörninni og Hljómskálagarðinum.
Húsið er á tveimur hæðum auk kjallara og hefur að sögn fasteignasala verið vel við haldið. Núverandi eigandi hefur búið þar frá árinu 1996 og hefur við endurbætur lagt áherslu á að varðveita upprunalegt yfirbragð og karakter hússins.
Sérstaka athygli vekur viðarklætt stigahús með panilklæðningum á veggjum og lofti ásamt viðarstiga og handriðum. Stórir gluggar og bjartar stofur einkenna einnig húsið.
Á fyrstu hæð eru tvö herbergi, eldhús, borðstofa, stofa og gestasalerni. Þaðan er útgengt að bakhlið hússins og niður í garð. Á efri hæð eru þrjú herbergi, þar á meðal hjónaherbergi, auk baðherbergis og svala.
Í kjallaranum er meðal annars stofa eða herbergi, eldhús, salerni með sturtu, þvottaherbergi, geymsla og vinnuherbergi. Kjallarinn er með sérinngangi og því er möguleiki á að útbúa þar sérstaka útleigueiningu.
Saga hússins nær aftur til 19. aldar. Samkvæmt samantekt um sögu þess var það reist árið 1883 við Thorvaldsensstræti og notað sem lyfjagerðarhús í tengslum við Reykjavíkurapótek. Húsið var síðan flutt að Bjarkargötu árið 1930, sem jafnframt er skráð byggingarár þess í fasteignaskrá.
Ekki er gefið upp fast söluverð fyrir eignina heldur er óskað eftir tilboði.