Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segja að það sé alvarlegt áhyggjuefni að Reykjavíkurborg forðist að taka ábyrgð á tjóni sem starfsfólk verður fyrir í störfum sínum.
Formennirnir rituðu saman grein sem birtist á Vísi í dag. Þar segir að borgin setji þrönga túlkun á eigin reglum og kjarasamningsákvæðum ofar en öryggi starfsfólks. Þau segja að borgin hafi gengið langt í að láta tjón lenda á starfsfólki sínu frekar en að taka það á sig, jafnvel þegar það væri unnið af skjólstæðingum borgarinnar.
Formennirnir tiltaka tvö dæmi. Annað af því þegar persónulegum munum starfsmanns á borð við fatnað, húslykla og heyrnartól hafi verið stolið þegar brotist var inn í íbúðarkjarna þar sem hann starfaði. Hitt af því að 150 þúsund króna rafhlaupahjóli starfsmanns hafi verið stolið af skjólstæðingi sem brotist hafi inn í læst starfsmannarými. Í báðum tilfellum hafi borgin neitað að bæta tjón starfsfólks síns.
„Það sem gerir þessi mál sérstaklega alvarleg er að starfsfólkið var við störf fyrir borgina, í húsnæði borgarinnar og í aðstæðum sem borgin ber ábyrgð á að séu öruggar. Samt situr starfsfólkið eftir með tjón upp á hundruð þúsunda króna, á meðan borgin velur að fela sig á bak við þrönga lögfræðilega túlkun og formsatriði í sínum eigin tryggingarskilmálum.“
Kári og Sólveig Anna segja fleiri dæmi um tjón á eigum starfsfólks, svo sem á bílum og öðrum verðmætum við vinnustaði borgarinnar, sem ekki hafi verið bætt.
„Þetta vekur upp alvarlegar spurningar. Á starfsfólk Reykjavíkurborgar í alvöru að mæta allslaust til vinnu? Eiga stéttarfélögin að vara fólk við ákveðnum starfsstöðvum ef það vill ekki taka persónulega fjárhagslega áhættu með því að mæta í vinnuna?“