Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í dag að þokast hefði nær samningum við Íran um stríðslok. Þá hótaði hann hörðum árásum næðust samningar ekki.
Yfirmaður hers Pakistans, sem verið hefur í Íran um helgina og reynt að miðla málum, segir einnig að mögulega hafi eitthvað áunnist. Enn virðist þó mikið bera í milli. Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans segir Írana vilja stríðslok á öllum vígstöðvum, þar með talið í Líbanon. Þá neiti Íranar að semja um kjarnorkuáætlun sína.
Hótanir á báða bóga
Ekki er lengra síðan en í gær að bandarískir fjölmiðlar greindu frá því að Bandaríkin og Ísrael myndu mögulega ráðast á Íran að nýju. Ráðamenn í Íran hóta grimmilegum hefndum. „Herirnir eru betur undirbúnir en nokkru sinni. Þeir eru í viðbragðsstöðu gráir fyrir járnum, svo að ef fjandmanninum verður eitthvað á, mæta honum harkalegri viðbrögð en nokkru sinni áður og sársaukafyllri,“ sagði Hassan Hassenzadeh, yfirmaður íranska byltingavarðarins í gær.
Gera kröfur um auðgað úran og tollheimtu
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er í opinberri heimsókn á Indlandi og sagði við blaðamann að mögulega myndi draga til tíðinda á næstunni. Hann ítrekaði kröfur Trumps um að Íran megi aldrei komast yfir kjarnavopn. „Sundið verður að opna án tollheimtu. Þeir verða að afhenda auðgaða úranið og sömuleiðis háauðgaða úranið. Það þarf að afgreiða það mál,“ sagði Rubio.