Leyniþjónustugögn frá Litáen benda til þess að Rússar séu mögulega að undirbúa einhvers konar aðgerðir gegn Eystrasaltslöndunum – Eistlandi, Lettlandi og Litáen – eða Póllandi. Þetta segir Gitanas Nauseda forseti Litáen í viðtali við fréttaveituna BNS sem starfar í Eystrasaltslöndunum.
Fjölmiðlar hafa flutt nokkrar fréttir af því að Rússar séu að undirbúa minni árásir sem beinast að mikilvægum innviðum í þessum löndum. Nauseda segir leyniþjónustuna hafa fengið vísbendingar í þessa veru.
„Þær gefa ekki til kynna sérstakan stað eða tíma því það er einfaldlega ekki hægt að komast að því. Það er ekki einu sinni víst að þeir séu með áætlun tilbúna og við vitum kannski aðeins um hvernig þetta er undirbúið og hvert markmiðið er.“
Nauseda segir að Litáar hafi gert ráðstafanir til að styrkja mikilvæga innviði á borð við samgöngur og orku vegna þessarara hættu. Yfirvöld byggju sig undir víðtækar árásir sem gætu valdið truflunum á mikilvægum innviðum. Þeir hefðu ekki aðeins þýðingu einir og sér heldur tryggðu virkni alls kerfisins. Þar nefndi hann sem dæmi tengingu við samevrópska raforkukerfið.
Edgars Rinkēvičs forseti Lettlands gaf út svipaða viðvörun í dag. Möguleiki væri á að Rússar gripu til þessara aðgerða til að láta reyna á virkni 5. greinar NATO-sáttmálans, sem kveður á um að árás á eitt NATO-ríki jafngildi árás á þau öll.
„Við verðum að vera vel undirbúin þegar stríðið í Úkraínu kemst á það stig að Rússar geti ekki lengur unnið stríðið í Úkraínu á vígvellinum,“ sagði Rinkēvičs.