Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, segir enn óljóst hvað hafi gerst á Dalsbúi í morgun.
„Það er ekkert ólíklegt að það séu einhverjir að verki sem voru á kjúklingabúinu og svínabúinu uppi á Kjalarnesi en ég ætla ekki að fullyrða það,“ segir hann.
Brotist var inn í hænsna- og kalkúnabúið á Reykjum í Mosfellsbæ í byrjun júní og á svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí. Dýrum var hleypt út og skemmdarverk unnin á búunum.
Hilmar segir ófremdarástand vegna minkanna sem sluppu og allt tiltækt viðbragð í gangi. „Lögregla, MAST, heilbrigðiseftirlit, allir meindýraeyðar sem hægt var að ná í.“
Hilmar segir mikið áhyggjuefni að margir minkar hafi sloppið úr búinu. „Það væri vont ef þetta myndi sleppa út í náttúruna. Ég veit ekki hvað öryggisgirðingarnar hafa haldið eða hvort þær hafi verið opnaðar líka. Við erum að ná utan um þetta, vonandi.“
Hann segir allt verða gert til að koma í veg fyrir að atvikið valdi skaða í Mosfellsdal.