Hallgrímur Helgason rithöfundur segir það lygi hjá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, prófessor emeritus, að hann hafi valdið miklum skemmdum á embættisbifreið Geirs Haarde þáverandi forsætisráðherra í mótmælum í kjölfar bankahrunsins 2008. Segist Hallgrímur hafa einfaldlega bankað í rúðuna og Geir hafi staðfest það.
Hannes rifjaði upp þetta atvik í kjölfar nýlegs þáttar á RÚV um Davíð Oddsson heitinn en Hannes var ósáttur við að rætt hefði verið við Hallgrím í þættinum en Hannes var sjálfur meðal viðmælenda. Hannes skrifaði á Facebook:
„Það var smekkleysa að fá eina manninn, sem ráðist hefur á bíl forsætisráðherra (Geirs), til að tjá sig um annan forsætisráðherra. Hallgrímur sýndi með þeirri árás, að hann var ekki í húsum hæfur, ekki salonfähig, eins og Þjóðverjar segja, ekki stueren upp á dönsku. Það kostaði hundruð þúsunda að gera við bílinn eftir árás Hallgríms, og aldrei hefur verið gerð minnsta tilraun til að innheimta þann kostnað (Jóhanna (Sigurðardóttir, innsk. DV) neitaði að gera það).“
Lygi
Hallgrímur segir þetta einfaldlega ekki vera satt. Hann ritar á Facebook:
„Hér er Hannes Hólmsteinn enn og aftur að ljúga upp á mig skemmdum á ráðherrabíl. Geir Haarde ritaði um þetta atvik í ævisögu sinni, allt satt og rétt þar. Og þegar við tveir hittumst óvænt í Borgarleikhúsinu fyrra tókumst við í hendur og afgreiddum málið endanlega. Þetta var auðvitað bara bank á rúðu og reiðihróp, aldrei neinar skemmdir, sama hvað menn reyna að fabúlera aftur og aftur. En sjálfsagt þarf mikla óskhyggju til að trúa enn á frjálshyggjuna og visst magn af lygum nauðsynlegt.“
Um atvikið skrifar Geir Haarde í ævisögu sinni á blaðsíðu 396-397:
„Hallgrímur Helgason rithöfundur sem afskræmdur í framan lamdi með krepptum hnefa í hliðarrúðuna við sæti mitt.“
Hópur fólks hafði raunar gert aðsúg að bílnum þar sem Geir sat í honum.
Lýsir Geir því síðan hvernig hópurinn kastaði í bílinn matvælum og ruggaði honum:
„Þetta var vægast sagt ógeðfelld lífsreynsla.“
Lýsir Geir því síðan hversu mjög þessi reynsla fékk á hann en hann nefnir Hallgrím ekki sérstaklega fyrir utan þá setningu sem vitnað er til hér að ofan.
Við hliðina
Eyþór Gunnarsson tónlistarmaður ritar athugasemd við pistil Hallgríms:
„Ég stóð við hliðina á þér og get vottað að bíllinn skemmdist ekki.“
Gunnar V. Andrésson fréttaljósmyndari segir í athugasemd:
„Ég myndaði atvikið eða gluggabankið, það var ekkert skemmdarverk að merkja af hálfu Hallgríms, en hann var ekki einn meðal reiðra.“
Egill Helgason sjónvarpsmaður telur ljóst að Hannes sé að fara með fleipur:
„Meira kjaftæðið. Fjöður sem varð að hænsnakofa.“