Olly Robbins, fyrrverandi embættismaður á utanríkismálaskrifstofu Bretlands, kom í morgun fyrir eftirlitsnefnd þingsins til að ræða skipun Peter Mandelson í embætti sendiherra í Bandaríkjunum. Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands rak Robbins úr embætti eftir að hafa fengið þær upplýsingar að Peter Mandelson hefði ekki staðist öryggisvottun, en samt fengið hana frá skrifstofunni.
Keir Starmer sagði í þinginu í gær að ef hann hefði vitað að Mandelson hefði ekki staðist öryggisvottun hefði hann aldrei skipað hann. Það sé ófyrirgefanlegt að hafa hvorki upplýst hann né aðra ráðherra um málið. Starmer segist hafa rekið Robbins þar sem honum fannst skýringar hans á því að Mandelson hafi fengið þessa öryggisvottun ekki nægjanlegar.
Robbins segist hafa upplifað sterkar væntingar frá forsætisráðuneytinu um að klára yrði skipun hans eins fljótt og mögulegt væri. Það hefði smitast inn í starfslið hans og viðhorf þess gagnvart vottunarkerfinu. „Skrifstofa mín í utanríkisráðuneytinu var undir stöðugum þrýstingi, það var eins og það væri stöðugt verið að eltast við okkur,“ sagði hann.
Þegar Robbins var spurður um möguleikann á því að neita Mandelson um öryggisvottun sagði hann að það hefði skapað vandamál bæði gagnvart utanríkisráðherranum og forsætisráðherranum. Hann ítrekaði þó að það hefði ekki verið honum efst í huga þegar ákvörðunin var tekin. Hann tók einnig fram að höfnun hefði getað haft slæm áhrif á tengsl Bretlands og Bandaríkjanna. Robbins staðfesti að hann hefði hvorki sagt Starmer, David Lammy þáverandi utanríkisráðherra né nokkrum öðrum ráðherra eða embættismanni að vottunarnefndin hefði hafnað öryggisvottun til handa Mandelson.
Mandelson var skipaður í sendiherraembættið í desember 2024 og var svo rekinn í september 2025 eftir að nýjar upplýsingar komu fram um tengsl Mandelson við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Lögreglan rannsakar einnig mögulegt misferli í starfi þegar Mandelson var vinnumarkaðsráðherra fyrir 15 árum. Hann neitar sök.
Þrýstingur hefur aukist verulega á Starmer að segja af sér vegna skipunar hans á Mandelson. Margir í hans eigin flokki segja það bera vott um slæma pólitíska dómgreind.