Segir af­nám vaxta­bóta bitna á tekjulágum heimilum - Vísir

Segir af­nám vaxta­bóta bitna á tekjulágum heimilum - Vísir

Segir af­nám vaxta­bóta bitna á tekjulágum heimilum - Vísir

Jana Eir Víglundsdóttir, hagfræðingur BSRB, segir gjaldskrárhækkanir í fjárlagafrumvarpinu jafnframt auka útgjöld heimilanna og geta haft áhrif á verðbólgu og verðbólguvæntingar.

„Það eru auðvitað gjaldskrárhækkanir þarna inni í fjárlagafrumvarpinu,“ segir hún.

Jana segir að í stað þess að leggja aukin gjöld á almenning geti stjórnvöld aflað tekna með því að skattleggja þá sem hafi meira svigrúm, til dæmis með hækkun fjármagnstekjuskatts.

Vaxtabætur felldar niður

Í fjárlagafrumvarpinu kemur fram að vaxtabætur falli niður frá og með næsta ári sem hluti af aðhaldsaðgerðum. Útgjöld ríkissjóðs lækki við það um 800 milljónir króna.

Vaxtabætur eru tekju- og eignatengdar og ráðast einnig af vaxtagjöldum og skuldum vegna eigin húsnæðis. Samkvæmt núgildandi reglum geta þær numið allt að 420 þúsund krónum hjá einstæðum, 525 þúsund krónum hjá einstæðu foreldri og 630 þúsund krónum hjá hjónum eða sambúðarfólki.

Stjórnvöld hafa boðað önnur úrræði

Stjórnvöld sögðu þegar afnámið var boðað að ný og markvissari úrræði hefðu tekið við. Í greinargerð með frumvarpinu, þar sem lagt var til að vaxtabæturnar yrðu afnumdar, var sérstaklega vísað til þriggja úrræða: hlutdeildarlána, skattfrjálsrar nýtingar séreignarsparnaðar vegna húsnæðis og húsnæðisbóta til tekjulágra leigjenda.

Hlutdeildarlánakerfið var síðan fest í sessi og skilyrði þess rýmkuð. Lánunum er nú úthlutað mánaðarlega og geta þau numið 30 prósentum af kaupverði og allt að 35 prósentum hjá tekjulægri umsækjendum. Lánsfjárheimildin var hækkuð úr fjórum í 5,5 milljarða króna. HMS segir 240 umsóknir hafa verið samþykktar á fyrstu átta mánuðum ársins, samtals að fjárhæð 3,5 milljarðar króna.

Alþingi samþykkti einnig í júní að gera almenna séreignarleið varanlega. Samkvæmt lögunum getur fólk sem greiðir í séreignarsparnað látið allt að 500 þúsund krónur á ári renna skattfrjálst inn á höfuðstól íbúðarláns. Heimildin gildir í samtals 120 mánuði, að teknu tilliti til fyrri nýtingar. Lögin taka gildi í október en geta gilt afturvirkt frá áramótum.

Stofnframlög ríkisins til almennra leiguíbúða hafa jafnframt verið hækkuð úr 18 í allt að 23 prósent af kostnaði. Samanlagt framlag ríkis og sveitarfélaga getur því orðið 35 prósent. Viðbótarframlag vegna íbúða sveitarfélaga og húsnæðis fyrir námsmenn og öryrkja var hækkað úr fjórum í fimm prósent og nær nú einnig til atvinnuhúsnæðis sem breytt er í íbúðir. Breytingarnar voru samþykktar í júní.

Tveir húsnæðispakkar

Úrræðin eru hluti af víðtækari aðgerðum stjórnvalda. Í fyrsta húsnæðispakkanum var einnig boðuð uppbygging fjögur þúsund íbúða í Úlfarsárdal, einföldun byggingarreglugerðar, stafrænar byggingarleyfisumsóknir og breytingar á byggingareftirliti.

Þá var boðað að draga úr skattaafslætti vegna leigutekna og skattfrelsi söluhagnaðar þeirra sem eiga margar íbúðir, heimila fasteignagjaldsálag á auðar byggingarlóðir, takmarka skammtímaleigu, skrá leigusamninga og draga úr vægi verðtryggðra lána. Einnig var boðað að sameina HMS og Skipulagsstofnun og selja hluta lánasafns Húsnæðissjóðs til að greiða niður skuldir ríkisins.

Í öðrum húsnæðispakkanum var boðuð uppbygging 1.200 til 1.400 íbúða á ríkislóðum og í fyrrverandi húsnæði ríkisins í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að 20 til 30 prósent þeirra verði almennar íbúðir eða annað hagkvæmt húsnæði.

Þar var einnig boðað að styrkja stöðu leigjenda, endurskoða tryggingafé og húsnæðisbætur, efla kærunefnd húsamála og veita ókeypis lögfræðiaðstoð við leigjendur. Að auki á að skoða nýtt húsnæðislánakerfi, bæta húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, móta landsstefnu um heimilisleysi og styðja húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni.

Úrræðin ná þó ekki öll til sama hóps og vaxtabæturnar. Hlutdeildarlán eru einkum fyrir fyrstu kaupendur, húsnæðisbætur og almennar íbúðir fyrir leigjendur og séreignarleiðin nýtist aðeins þeim sem greiða í séreignarsparnað og hafa ekki fullnýtt tíu ára heimildina. Hóparnir geta því skarast en ekkert þessara úrræða er bein tekju- og eignatengd greiðsla til núverandi íbúðareigenda í stað vaxtabótanna.

Jana segir BSRB árum saman hafa gagnrýnt að húsnæðisstuðningur við almenning hafi ekki verið endurskoðaður með fullnægjandi hætti samhliða afnámi vaxtabótanna. Samtökin vilji meðal annars sjá meiri stuðning við almenna íbúðakerfið og aukna uppbyggingu óhagnaðardrifins húsnæðis.

Viðmið barnabóta standa óbreytt

Fjárheimild til barnabóta verður áfram 21 milljarður króna. Það er sama fjárhæð og í gildandi fjárlögum en 1,5 milljörðum meira en áætlað er að greiða í ár. Heildarútgjöldin eru því ekki skorin niður frá áætlaðri útkomu ársins.

Hins vegar stendur til að framlengja óbreyttar útreikningsreglur og viðmiðunarfjárhæðir barnabóta um eitt ár. Ef verðbólga verður 3,6 prósent eins og frumvarpið gerir ráð fyrir rýrna fjárhæðirnar að raunvirði. Hækki tekjur á sama tíma geta tekjutengdar skerðingar einnig orðið meiri.

Fjárheimild til húsnæðisbóta verður 11,1 milljarður króna, óbreytt frá gildandi fjárlögum. Hún er þó 700 milljónum krónum lægri en áætluð útgjöld þessa árs. Ekki kemur fram í fjárlagagögnunum hvað skýri muninn. Gögnin ein og sér sýna ekki að greiðslur til hvers heimilis verði lækkaðar.

Ríkisstjórnin segir hallalaus fjárlög styðja við lækkun verðbólgu og vaxta. Aðspurð hvort sá ávinningur bæti upp skerðingarnar svarar Jana:

„Ég sé það ekki svoleiðis. Mér finnst það svolítil skammtímahugsun.“

Hún segir að það sem kallað sé sparnaður í frumvarpinu felist að stórum hluta í því að draga úr fjárfestingu, sem sé ekki gott til lengri tíma með tilliti til verðmætasköpunar. Þá kunni hluti fjárfestingarinnar að vera færður yfir í félög sem komi ekki fram í fjárlagafrumvarpinu, fremur en að fjárfestingin sé í raun minnkuð. Því þurfi að skoða aðhaldið og áhrif þess með heildstæðari hætti.

#afnám #bitna #segir #tekjulágum #vaxtabóta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262932636d/segir-afnam-vaxtabota-bitna-a-tekjulagum-heimilum

📰 Aðrar fréttir

540 stríðsföngum sleppt
📅 26.10.2026 👁️ 0
540 stríðsföngum sleppt
Úkraína og Rússland skiptust á 540 stríðsföngum, eða 270 af hvoru þjóðerni, á föstudag. Meðal fanga sem sleppt var úr haldi Rússa voru 261 hermaður og...
Brazil elections: Lula secures fourth term after dramatic comeback
📅 26.10.2026 👁️ 3
Brazil elections: Lula secures fourth term after dramatic comeback
President Lula has pulled of a surprise win, but he will face a hostile Congress and a polarised country,
Lula forseti í fjórða sinn
📅 26.10.2026 👁️ 3
Lula forseti í fjórða sinn
Luiz Inacio Lula da Silva, sitjandi forseti og leiðtogi Verkamannaflokksins, er sigurvegari forsetakosninganna í Brasilíu, en síðari umferð kosningann...
Healey’s Budget needs to sustain the stronger economy through gathering clouds
📅 26.10.2026 👁️ 3
Healey’s Budget needs to sustain the stronger economy through gathering clouds
The economic is positive now but come January things could become trickier for the Labour government
Umhverfisspjöll Google vekja reiði í Finnlandi
📅 26.10.2026 👁️ 3
Umhverfisspjöll Google vekja reiði í Finnlandi
Vessandi forarsvað þar sem áður stóðu 250.000 tréSkammt utan við smábæinn Muhos í norðanverðu Finnlandi, spottakorn frá Oulu, er um 330 hektara, vandl...
Machado komin aftur til heimalandsins
📅 26.10.2026 👁️ 3
Machado komin aftur til heimalandsins
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, María Corina Machado, er komin til heimalandsins eftir tæpt ár í útlegð....
Nicki Minaj joins Trump onstage at Michigan rally
📅 25.10.2026 👁️ 0
Nicki Minaj joins Trump onstage at Michigan rally
The Super Bass singer is the latest big name to campaign in Michigan, where a tight Senate race is playing out ahead of the 3 November midterms.
Stukku fram af kletti ofan í Goða­foss - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Stukku fram af kletti ofan í Goða­foss - Vísir
Í texta við myndbandið segir að atvikið hafi átt sér stað 20. september síðastliðinn og að piltarnir hafi stokkið úr um 40 feta hæð, eða rúmlega tólf ...
Malbiksviðgerðir á Arnarnesvegi
📅 25.10.2026 👁️ 5
Malbiksviðgerðir á Arnarnesvegi
Stefnt er að malbiksviðgerðum á Arnarnesvegi mánudaginn 26. október, milli klukkan 10:00 og 16:00. Búast má við einhverjum töfum á umferð á meðan á fr...
Funding set to double for plan to get rough sleepers off streets by Christmas
📅 25.10.2026 👁️ 5
Funding set to double for plan to get rough sleepers off streets by Christmas
Burnham made ending rough sleeping his first pledge when entering Downing Street in July.
„Noregur sökkar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
„Noregur sökkar“ - Vísir
Trump er tíðrætt um einmitt það og ljóst að norska þjóðin hefur ekki verið í miklu uppáhaldi hjá Bandaríkjaforseta frá því að tilkynnt var um að Nóbel...
Deeply divided Israel braces for pivotal election
📅 25.10.2026 👁️ 5
Deeply divided Israel braces for pivotal election
After three years of regional war, this is a battle Israel always knew was coming, writes Lucy Williamson.
Spotify uploads Irish lyrics for Dolly Parton's Welsh Jolene version
📅 25.10.2026 👁️ 4
Spotify uploads Irish lyrics for Dolly Parton's Welsh Jolene version
The single is the second posthumous release from Parton - who was of Welsh descent.
Trump eftir Nóbelsverðlaunin: „Noregur er í raun orðinn skítaland“
📅 25.10.2026 👁️ 4
Trump eftir Nóbelsverðlaunin: „Noregur er í raun orðinn skítaland“
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði Noreg skítaland á kosningafundi í McMorran Place í Port Huron í Michigan nú í dag, sunnudaginn 25. október. Han...
Vučić játar ó­sigur - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Vučić játar ó­sigur - Vísir
Serbneski framfaraflokkurinn undir forystu Vučić hefur farið með stjórn landsins í hálfan annan áratug og Vučić sjálfur flakkað á milli embættis forsæ...
Suðurlandsvegi lokað við Rauðavatn annað kvöld
📅 25.10.2026 👁️ 4
Suðurlandsvegi lokað við Rauðavatn annað kvöld
Kafla af Suðurlandsvegi verður lokað á annað kvöld, frá klukkan átta til miðnættis. Þetta kemur fram á síðu Vegagerðarinnar.Stefnt er að malbiksviðger...
Manchester United & Michael Carrick: Air of inevitability around manager's future but owners' problems far bigger
📅 25.10.2026 👁️ 4
Manchester United & Michael Carrick: Air of inevitability around manager's future but owners' problems far bigger
Manchester United's fans sang their support for Michael Carrick during the 3-0 home defeat by Bournemouth, but voiced their opposition to virtually ev...
Segir Við­reisn í krísu og úti­lokar ekki að hætta stuðningi - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Segir Við­reisn í krísu og úti­lokar ekki að hætta stuðningi - Vísir
Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar fyrr í mánuðinum en er áfram meðlimur í flokknum. Hann gerði skriflegt samkomulag við þingflokkinn um að styðja...
Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
📅 25.10.2026 👁️ 4
Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
The country's populist right-wing leader of 12 years says it is "clear" hisb Serbian Progressive Party (SNS) has lost.
Serbia's veteran ruler Vučić concedes election to student-led protest movement
📅 25.10.2026 👁️ 4
Serbia's veteran ruler Vučić concedes election to student-led protest movement
The populist right-wing leader of 12 years says it is "clear" his party has lost the vote billed as a referendum on the country's future.
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 4
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
Aleksandar Vučić, fyrrverandi forseti Serbíu, viðurkennir ósigur í þingkosningunum sem fóru fram í landinu í dag. Hann segir fjöldahreyfingu stúdenta ...
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í kvöld. Klukkustund fyrr höfðu 67,6 prósent kjósenda þegar greitt atkvæði samkvæmt umfjöllun Reuters....
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
📅 25.10.2026 👁️ 4
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
Fossinn Gljúfrabúi nýtur vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna, en áður var fossinn vel falin perla sem fáir utan landsteinanna vissu af.Göngum u...
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
📅 25.10.2026 👁️ 4
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
Fleiri alvarlegir öryggisgallar, eins og sá sem varað var við í PHP-forritunarmálinu í vikunni, eiga eftir að koma í ljós. Þetta segir Ingólfur Andri ...
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
📅 25.10.2026 👁️ 5
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
Kjörstöðum í Brasilíu hefur verið lokað. Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag.Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir, ...
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
📅 25.10.2026 👁️ 4
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
Kjörstöðum í Brasilíu verður haldið opnum tveimur klukkustundum lengur en til stóð. Þeir áttu að loka klukkan fimm að staðartíma en verða opnir til kl...
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
En þetta tveggja áratuga starf sem hefur falið í sér að vera framkvæmdastjóri, skutlari, fjármálastjóri, tilfinningalegur öryggispúði og svo mætti len...
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
📅 25.10.2026 👁️ 5
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
Árleg garðfuglakönnun félagsins Fuglaverndar hófst í dag og stendur til 24. apríl. Kannanir hófust 1994 og tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um f...
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að f...
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
📅 25.10.2026 👁️ 5
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa ...
Kjörstöðum lokað í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 5
Kjörstöðum lokað í Serbíu
Kjörstöðum í Serbíu hefur verið lokað og búast má við fyrstu tölum eftir um tvær klukkustundir. Þingkosningar voru í landinu í dag og allt bendir til ...
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess...
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
📅 25.10.2026 👁️ 4
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundi...
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
📅 25.10.2026 👁️ 4
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
Roslyn Loveless, who has since died, divorced Meghan's father in 1975. Meghan said she had been informed about the "disturbing allegations" in 2018.
Long queues after power surge at Stansted Airport
📅 25.10.2026 👁️ 5
Long queues after power surge at Stansted Airport
A passenger says she was trapped in a corridor at the airport for 90 minutes.
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
„[Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi ...
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 4
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt ...
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
📅 25.10.2026 👁️ 4
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhús...
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
📅 25.10.2026 👁️ 4
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
The Jewish body's vote comes in response to the Green Party passing a "Zionism is racism" policy motion.
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
📅 25.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna Fréttin25. október 2026Inn...
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
📅 25.10.2026 👁️ 4
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu Úkra­ínskur varn­ar­mála­ráð­herra segir teng­ing­una nú stöðuga. Elon Musk segir að her lands­ins...
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í...
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
📅 25.10.2026 👁️ 4
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjón...
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
📅 25.10.2026 👁️ 4
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell Dularfullt geimfarGeimfar sem sást í vesturhluta Bandaríkjanna á þessu ári Mynd: Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjan...
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desemb...
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 5
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
An amber wind warning will remain until Sunday evening as severe weather continues to batter the UK.
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 5
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
An amber wind warning has now expired after severe weather sweeps across the UK.
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 90,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 1
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 90,000 properties without power
An amber wind warning has now expired after severe weather sweeps across the UK.
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
📅 25.10.2026 👁️ 4
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
Michael Carrick's future as Manchester United manager is under major threat following the home loss to Bournemouth on Sunday.