Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

Maður sem lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði í Yorkshire á Englandi sást dansa með heyrnartól í eyrunum skömmu áður en hann stökk yfir girðingu og inn á svæði dýrsins til að „leika sér“ við það, að sögn vitnis.
Lögregla og sjúkraflutningamenn voru kallaðir að Yorkshire Wildlife Park, nærri Doncaster, um klukkan 13:35 eftir að tilkynnt var að maður hefði stokkið yfir girðingu og á svæði tígrisdýrs.
Lögreglan í Suður Jórvíkurskíri staðfesti að maðurinn hefði verið úrskurðaður látinn á vettvangi. Tígrisdýrið slasaðist ekki í atvikinu.
Gestur í garðinum sagði að hún hefði fylgst með manninum í um 20 mínútum áður en atvikið átti sér stað.
„Maðurinn sem ég sá dansa á brúnni með heyrnartól í eyrunum virtist njóta þess að horfa á tígrisdýrið,“ sagði hún.
„Ég er ekki viss um hvort hann hafi verið með umönnunaraðila eða fjölskyldumeðlim, en ég held í alvöru að hann hafi bara viljað leika sér við tígrisdýrið.“
Fréttir bárust af því að skotum hefði verið hleypt af skömmu áður en garðurinn var rýmdur og sjúkraflugvél kom á vettvang.
Myndskeið sem birtist á netinu sýnir mann liggjandi á grasinu á svæði tígrisdýrsins áður en dýrið réðst á hann.